Skoðun

Ekki missa af framtíðinni

Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar
Það eru allir að tala um fjórðu iðnbyltinguna. Okkur er sagt að hún færi okkur stórkostlega stafræna framtíð. Óendanlega möguleika til nýsköpunar með tilheyrandi umbreytingu á samfélagsgerðinni – veröld nýja og góða. Sumt af því sem okkur er sagt hljómar óhugsandi en þannig er það með margt sem til framfara horfir. Fyrir hundrað árum þótti mörgum óhugsandi að konur fengju kosningarétt. En þær fengu hann samt. Fyrir fimmtíu árum þótti flestum óhugsandi að konur ættu rétt á nokkurra mánaða launuðu fæðingarorlofi (hvað þá karlar). En þannig er það þó í dag.

Hvorki kosningarétturinn né fæðingarorlofið tengjast tækniframförum með beinum hætti. En hvort tveggja er þó óbein afleiðing iðnbyltinganna sem hófust fyrir 250 árum. Með þeim var rofin kyrrstaða gömlu landbúnaðarsamfélaganna sem iðnvæddust hvert á fætur öðru. Þær breytingar kölluðu á stofnun verklýðsfélaga , fyrst sem andsvar við verksmiðjuþrælkun en síðar sem sjálfstætt afl sem gætir réttinda launafólks um allan heim. Og síðast en ekki síst skilaði barátta kvenna fyrir frelsi og sjálfstæðum réttindum á vinnumarkaði okkur fram veginn. Sagan segir okkur að tæknibyltingar geta breytt atvinnuháttum og samfélagi. En byltingarnar hafa ekki orðið af sjálfum sér heldur af manna völdum. Þær hafa orðið vegna ákvarðana sem menn (nánast eingöngu karlmenn) hafa tekið og fylgt eftir. Þetta segir okkur að við getum og eigum að hafa stjórn á atburðarásinni svo að fjórða iðnbyltingin verði til góðs en ekki ills.

Fjórða iðnbyltingin mun hafa mikil áhrif á vinnumarkað framtíðarinnar. Hlutverk stéttarfélaga mun breytast en mikilvægi þeirra fyrir réttindagæslu og hagsmunabaráttu félagsmanna verður hið sama og áður. Fyrir marga háskólamenntaða er fastráðning með tryggum kjörum og réttindum fjarlægur draumur. Þúsaldarkynslóðin er orðin fullorðin og vinnumarkaðurinn sem við henni blasir er allt annar en sá sem X-kynslóðin eða þau sem á undan henni fóru þurftu að fóta sig á. Margir eiga ekki kost á öðru en verktakavinnu og/eða tímabundnum ráðningum. Mörg fara frá „giggi“ til „giggs“ og verða að taka þau verkefni sem bjóðast. Þessi nýja staða kallar á breytt skipulag og vinnubrögð stéttarfélaga.

Undirbúningurinn er hafinn af hálfu BHM. Við ætlum ekki að missa af framtíðinni.

 

Höfundur er formaður BHM.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×