Skoðun

Áhyggjur á ævikvöldi

Guðjón S. Brjánsson skrifar
Meðal stóru áherslumálanna í síðustu alþingiskosningum voru heilbrigðis- og velferðarmál. Íslendingar eru ung þjóð, yngri en nágrannaþjóðirnar, og stærstur hluti aldraðra er hraustur og heilbrigður og býr á eigin heimili mestan hluta ævinnar. Samt vistast hlutfallslega mun fleiri á hjúkrunarheimilum á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum. Önnur, hagkvæmari og betri úrræði eru fábreyttari. Vissulega þarf bráðaaðgerðir í hjúkrunarþjónustu við aldraða. Það sem þó skiptir höfuðmáli er að heilbrigðis- og velferðarþjónustan verði endurskilgreind.

Vinna þarf að því í verki að gera öldruðum mögulegt að búa við öryggi og lífsgæði á eigin heimili mun lengur en tíðkast hefur. Hinn mikli vandi á íbúðamarkaði tröllríður umræðunni, snertir hag aldraðra með beinum hætti og aðkoma stjórnvalda að þeim þætti er nauðsynleg. Hagkvæmt húsnæði þar sem félagslegt samneyti er tryggt, eftirlit sömuleiðis með heilsufari og öryggi getur ráðið úrslitum um velsæld og heilbrigði, dregið úr einangrun og slysahættu og tafið stofnanavistun um marga mánuði eða jafnvel gert slíkt úrræði óþarft. Rannsóknir sýna að aldraðir almennt kjósa að vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Nokkur hluti aldraðra býr við sæmileg lífeyriskjör en stór hluti þeirra við afar þröngan kost. Lamandi skerðingar þeirra sem enn vilja leggja sitt af mörkum á vinnumarkaði eru líka fráleitar. Þetta er fjölbreytilegur þjóðfélagshópur sem á margt sameiginlegt. Þannig hafa t.d. flestir gengið að því sem vísu að lífeyrissjóðsgreiðslur á starfsævinni yrðu þeim verulegur búhnykkur á efri árum en orðið fyrir vonbrigðum.

Hið gamalkunna kjörorð „búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld“ er glapsýn. Áhyggjur fylgja mannfólkinu auðvitað alla tíð og aldraðir hafa því áhyggjur eins og annað venjulegt fólk. Það er hins vegar hryggilegt að þjóðin sé svo skammt komin á braut velferðar að hluti eldri borgara skuli enn hafa áhyggjur af framfærslu sinni, hvort þeir eigi til hnífs og skeiðar. Það er ljótur blettur á samfélagi sem vill kenna sig við velferð.

Höfundur er alþingismaður




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×