Matur

Vatnsmelónusalat með mojito

Vatnsmelóna með mojito bragði. Hvað er sumarlegra er það?
Vatnsmelóna með mojito bragði. Hvað er sumarlegra er það?

Góðir réttir þurfa ekki að vera óhollir. Hér er uppskrift sem er góðar á sumardegi en jafnframt holl, vatnsmelónusalat með mojito.

Þetta er ótrúlegt frísklegt salat fyrir fullorðna. Gera þarf vinaigrette með bragð af mintu, rommi og límónu. Salatið fer einstaklega vel með grilluðum kjúklingabringum. Uppskriftin miðast við fjóra.

Vatnsmelónusalat með mojito

½ vatnsmelóna

Börkur af tveimur límónum

Safi úr einni límónu

2 tsk. hrásykur

2 msk. minta, fínt skorin

2 msk. romm (má sleppa)

2 msk. ólífuolía

½ tsk. salt

¼ tsk. pipar



Skerið melónuna í hæfilega bita. Setjið sítrónusafa og börk í skál ásamt sykri, mintu og rommi. Hrærið allt vel saman. Bætið þá olíunni saman við og hrærið vel. Bragðbætið með salti og pipar. Hellið blöndunni yfir melónuna og geymið í ísskáp í 20 mínútur svo hún taki í sig bragðið.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.