Skoðun

Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins

Björgvin Guðmundsson skrifar
Almannatryggingar voru stofnaðar 1946. Ríkisstjórn Alþýðuflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokksins, svo kölluð nýsköpunarstjórn, kom tryggingunum á fót. Forsætisráðherra var Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann lýsti því þá yfir, að almannatryggingarnar ættu að vera fyrir alla, án tillits til stéttar eða efnahags. Og hann sagði, að almannatryggingarnar ættu að vera í fremstu röð slíkra trygginga í Vestur-Evrópu. Þetta voru skýr og ákveðin markmið. Almannatryggingarnar áttu því ekki að vera nein fátækraframfærsla. Þær áttu að vera fyrir alla. Almannatryggingarnar voru fyrsta stoð velferðar- og lífeyriskerfis á Íslandi.

En ýmsir stjórnmálamenn á Íslandi hafa viljað breyta þessu. Þeir hafa viljað breyta almannatryggingum í einhvers konar fátækraframfærslu og eftir að lífeyrissjóðirnir efldust tala þeir um að lífeyrissjóðirnir eigi að vera fyrsta stoð lífeyriskerfisins og almannatryggingar önnur stoðin. Einn þeirra, sem talar á þessum nótum, er félagsmálaráðherra Viðreisnar, Þorsteinn Víglundsson. En það hefur ekki verið samþykkt á Alþingi, að lífeyrissjóðirnir eigi að vera fyrsta stoð lífeyriskerfisins. Upphaflegt markmið almannatrygginga er enn í fullu gildi. Almannatryggingar eiga að vera fyrir alla.

Þeir, sem eru eldri borgarar í dag, byrjuðu að greiða til almannatrygginga 16 ára gamlir. Þá var lagt á sérstakt tryggingagjald, sem rann til almannatrygginga. Síðan greiddu þeir einnig til almannatrygginga gegnum skattakerfið. Þeir, sem greitt hafa til almannatrygginga alla sína starfsævi, eiga það inni að fá greitt úr almannatryggingum, þegar þeir fara á eftirlaun. En stjórnvöld felldu niður grunnlífeyrinn um síðustu áramót og strikuðu þar með 4.500 manns út úr almannatryggingum.

Hvers vegna vilja misvitrir stjórnmálamenn, að lífeyrissjóðirnir verði fyrsta stoð lífeyriskerfisins en ekki almannatryggingar? Það er vegna þess, að þeir vilja láta eldri borgara greiða sinn lífeyri sjálfa. Tölfræði sýnir, að nú þegar er það svo, að eldri borgarar á Íslandi greiða meiri hluta lífeyris síns sjálfir gegnum lífeyrissjóðina og mun stærri hluta en gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Samt leggur ríkið á Íslandi miklu minna til almannatrygginga en önnur norræn ríki gera. Og tekjutengingar eru miklu meiri í tryggingakerfinu hér en gerist annars staðar á Norðurlöndunum. En hægri mönnum hér finnst ekki nóg að gert í þessu efni. Þeir vilja að eldri borgarar sjálfir greiði allan pakkann.

Stórfelld skerðing á tryggingalífeyri þeirra eldri borgara, sem fá greiðslur úr lífeyrissjóði, er liður í því að koma allri eftirlaunabyrðinni yfir á eldri borgara sjálfa. Þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir var gert ráð fyrir því, að þeir yrðu viðbót við almannatryggingar. Það var ekki inni í myndinni, að þeir myndu valda skerðingu tryggingalífeyris. Það var óskráð samkomulag stjórnvalda og lífeyrissjóða að lífeyrissjóðirnir yrðu viðbót við almannatryggingar. Stjórnvöld hafa svikið þetta samkomulag með því að seilast bakdyramegin í lífeyrissjóðina.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×