Skoðun

Reikigjöldin heyra sögunni til

Ólafur Arnarson skrifar
Frá og með 15. júní heyra reikigjöld vegna fjarskiptanotkunar innan EES sögunni til. Framvegis geta Evrópubúar notað símann sinn í öllum löndum EES, hvort sem um er að ræða mínútur, SMS eða gagnamagn, á nákvæmlega sömu kjörum og í sínu heimalandi. Engu máli skiptir fyrir íslenskan viðskiptavin Símans, Vodafone, Nova eða annarra fjarskiptafyrirtækja hvar í Evrópu hann notar snjallsímann sinn. Pakkinn hans á Íslandi gildir líka í öðrum Evrópulöndum. Þetta eru mikil tímamót fyrir neytendur, en Samtök evrópskra neytendasamtaka, BEUC, hafa lengi barist fyrir þessum mikilvægu hagsmunum og nú er málið í höfn og meginreglan innan Evrópu er framvegis að fólk getur reikað eins og það sé heima hjá sér. Á ensku er notuð fyrir þetta skammstöfunin RLAH, sem stendur fyrir: Roaming like at home.

Neytendur verða að vera vakandi og fylgjast með að fjarskiptafyrirtæki fari eftir hinum nýju reglum. Allir neytendur eiga skilyrðislausan rétt á þessu. Hafa ber þó í huga að fjarskiptafyrirtækjum er heimilt að bjóða viðskiptavinum sínum önnur kjör en enginn viðskiptavinur þarf að samþykkja slíkt.

Ákveðnar undanþágur eru frá hinni nýju meginreglu en þær miða m.a. að því að koma í veg fyrir að viðskiptavinur, sem býr í einu landi, geti keypt sína fjarskiptaþjónustu í öðru landi og reikað án aukagjalds. Einnig getur í vissum tilfellum verið leyfilegt fyrir fjarskiptafyrirtæki að innheimta aukagjald fyrir gagnamagn umfram tiltekið hámark ef heildsöluverð gagnamagns í Evrópu er hærra en það gjald sem fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum í áskriftarsamningi. Þetta viðbótargjald getur hins vegar aldrei orðið hærra en svo að það brúi bilið milli áskriftarverðsins og heildsöluverðsins.

Nú ríður á að hver einstakur neytandi sé á varðbergi og fylgist vel með hvort fjarskiptafyrirtækið hans virðir hina nýju meginreglu. Mikilvægt er að hafa í huga að fjarskiptafyrirtækjum er óheimilt að víkja frá meginreglunni nema að fengnu upplýstu samþykki viðskiptavinar. Neytendasamtökin munu fylgjast með framkvæmd þessara nýju reglna af hálfu fjarskiptafyrirtækja og ég hvet neytendur til að hafa samband við okkur í [email protected] ef þeir verða varir við að misbrestur sé á að réttum reglum sé framfylgt.

 

Höfundur er formaður Neytendasamtakanna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×