Skoðun

Grimmur hús­bóndi

Bubbi Morthens skrifar

Óttinn er grimmur húsbóndi sem fær fólk til að gera ótrúlegustu hluti og bregðast við á annan máta en ef það væri ekki óttaslegið.



Sjálfmynd Íslendinga hefur verið sú að við værum vopnlaus þjóð og við höfum flaggað þeirri mynd sem víðast og oftast. Í áratugi hafa fréttir borist hingað uppá klakann um allskonar hryðjuverkaógnir.



Ítalía og Þýskaland voru í brennidepli á sjöunda áratugnum; nánast vikulega bárust fréttir af ódæðum hryðjuverkamanna sem sögðust flestir vera að berjast gegn fasistum og heimsvaldasinnum. Fréttir bárust líka til okkar um að í Suður-Ameríku væru hryðjuverkahópar að hrekkja yfirvöld með ránum, morðum og allskonar kröfum. Síðan er það árásin á tvíburaturnana. Frá þeim degi hafa nánast verið í fréttum daglega sögur af vondum múslimum og hafa Isis-samtökin verið í fyrsta sæti þeirrar ógnar sem steðjar að hinum vestræna heimi. Og sannarlega er þetta ógn, en við eigum ekki að láta hana fara stjórna lífi okkar.



Þá er ég kominn að aðalefninu. Ríkilögreglustjóri og æðstu ráðamenn þjóðarinnar eru farnir að hittast suður á Velli til að ræða þá ógn sem þeir telja að landinu okkar stafi af hryðjuverkum. Það er vel; við þurfum að vera vakandi.



En sú ákvörðun að planta vopnuðum lögreglumönnum meðal almennings er algjör kúvending á öllu sem við höfum átt að venjast og þetta gerist bara einn, tveir og þrír. Allt í einu eru vopnaðir menn út um allt þegar samkomur eiga sér stað. Nú er það svo að vopn auka ekki öryggiskennd manna, þvert á móti þá auka þau á ótta og öryggisleysi.



Almenn skynsemi segir okkur að það sé raunverulegur möguleiki á því að einhver brjálæðingur eða brjálæðingar taki sig til og vilji ráðast á okkur.  Það er auðvitað hugsanlegt að hafa vopnaða sérsveitarmenn í bílum á fjölmennum stöðum. En það er áreiðanlegt mál að vopnaðir menn fæla ekki hryðjuverkamenn frá. Hinsvegar hafa þeir náð þeim frábæra árangri, að þeirra eigin mati, að örþjóð á norðurhjara er lostin ótta. Þetta er það sem þeir vilja: að sá ótta meðal þjóða.



Við þurfum ekki að óttast né láta óttann stjórna okkur. Við þurfum klárlega að eiga til viðbragðsáætlun. Áætlun um hvernig skuli bregðast við ef til átaka kemur. En við viljum ekki vopnaða lögreglumenn sem vekja upp ótta með því að ganga um með hlaðnar byssur. Íslenska lögreglan býr við þá ótrúlegu staðreynd miðað við aðrar þjóðir að njóta traust nánast allra landsmanna. Hræddur er ég um að það gæti breyst með þessari óttaslegnu ákvörðun yfirvalda að planta þeim innanum almenning með hlaðin vopn.



Óttinn er harður húsbóndi og lætur ekki svo glatt afvopna sig.



Höfundur er tónlistarmaður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×