Skoðun

Um áhyggjulausa ævikvöldið

Ellert B. Schram skrifar
Nú fyrr í mánuðinum flutti ungur varaþingmaður, Albert Guðmundsson, jómfrúarræðu sína á Alþingi og hún fjallaði um málefni aldraðra. Full ástæða er til að hrósa honum fyrir að nota þetta hátíðartækifæri sitt til að tileinka þessa fyrstu ræðu sína „þeim sem eldri eru“.

Það er ekki á hverjum degi sem yngra fólk og jafnvel ráðandi fólk beinir athyglinni að kjörum og málefnum eldri borgara.

Albert vék að frítekjumarkinu, sem nú hefur verið lögfest á þann hátt að fólk sem fær tryggingabætur frá almannatryggingum situr í þeirri fátæktargildru að ef viðkomandi vinnur sér inn aukatekjur, umfram það sem hann fær frá almannatryggingum, til dæmis 100 þús. kr., heldur hann eftir 25% af viðbótartekjunum.

Jú, þetta á að laga , segja ráðherrarnir, næstu fjögur árin! Í nafni fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar. Hvað skyldu margir lifa það af? Hverjir taka slíkar ákvarðanir og áætlanir nema ríkisstjórnin sem er háð þeim þingmönnum sem styðja stjórnarflokkana. Og þeim ungu þingmönnum, þar á meðal Albert Guðmundssyni, sem hugsar hlýtt til eldri borgara og hags þeirra.

Þau lögbundnu skerðingarákvæði sem nú gilda, er verk núverandi ríkisstjórnar. Það frítekjumark sem lögleitt hefur verið, er smánarblettur á því hlutverki sem stjórnmálafólk á að sinna. Albert segir: „Það er skylda okkar að tryggja að þeir sem hafa skilað góðu dagsverki og greitt til samfélagsins alla ævi, geti lifað áhyggjulaust ævikvöld og einnig að við hvetjum til virkni þeirra sem starfsgetu hafa og kjósa að halda áfram að vinna.“

Heyr fyrir honum, en þá verður hann líka, þessi sómadrengur á Alþingi, að láta kné fylgja kviði og berjast gegn þeim fátæktargildrum sem eldra fólki stendur til boða. Og hver er svo skynlaus að halda, að frítekjumörk eldri borgara séu sanngjörn eða boðleg á ævikvöldi? Eða að þau leiði til meira framlags og atvinnuþátttöku fólks á efri árum? Fjármálaáætlun kemur ekki að himni ofan. Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er verkefni hennar sjálfrar. Hún er mannanna verk. Hún er ekki höggvin í stein.

Það stendur upp á stuðningsmenn núverandi ríkisstjórnar að breyta þessu ógeðslega frítekjumarki. Ef þeir á annað borð meina það sem þeir segja um áhyggjulaust ævikvöld. Unga fólkið á Alþingi getur ráðið ferðinni. Ef það vill.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×