Skoðun

Almenn skynsemi

Ívar Halldórsson skrifar
Margir sögðu Galileo vera skrýtinn og sjónaukaáráttu hans vera fjarstæðukennda vitleysu og algjöra tímaeyðslu. Fólk hló að John L. Baird þegar hann sýndi bresku vísindamönnunum fyrstu sjónvarpsmyndavélina og kölluðu þeir hann meira að segja svindlara. R. Goddard var afskrifaður sem veruleikafirrt viðundur þegar hann trúði að unnt væri að búa til eldflaugarknúið farartæki sem flogið gæti út í geiminn í anda ofurhetjunnar Flash Gordon eða skáldsagnahöfundarins Jules Verne.

Ég held að árangur okkar í vísindum, stjórnmálum, læknisfræði, byggingafræði, siðfræði o.s.frv. megi rekja til atvika þar sem fólk var á öndverðum meiði. Ef allir hefðu alltaf verið sammála um allar aðgerðir í gegnum tíðina, væri ég líklega að skrifa þessa grein með krítarmola á einhverja steinhellu.

Auðvitað vilja allir alltaf hafa rétt fyrir sér – svona alla vega upp á egóið að gera. En miðað við það sem sagan hefur kennt okkur eru góðar líkur á því að það sem einhver vill meina að sé rétt skoðun, sé ekki endilega nægilega skotheld skoðun til að geta útilokað önnur sjónarhorn.

Ef Einstein hefði hlustað á alla þá sem voru sammála um að honum myndi aldrei takast að kveikja á perunni, væri enginn að spyrja mig í dag hvort ég færi reglulega í ljós. Umdeildar vangaveltur vísindamannsins opnuðu dyr ómöguleikans og allir veraldarbúar skiptu um skoðun.

Við verðum öll að fá svigrúm til að fylgja sannfæringu okkar og viðra skoðanir okkar frjálslega, ef við ætlum að ekki að fara á mis við góðar framfarir og skynsamlegar ákvarðanir. Við þurfum að sama skapi að hlusta meira á hvort annað. Við þurfum að íhuga hið “ómögulega” og hið óvinsæla. Við þurfum að setja okkur oftar í fótspor annara og forðast að týnast í eigin sjálfhverfu.

Það er því ekki skynsamlegt að ráðast í krafti meirihlutans, á þær skoðanir sem virðast furðulegar eða óvinsælar, því að það gæti þá komið á daginn að maður þyrfti að kyngja munnfylli af stórum orðum og viðurkenna að hin ólíklega skoðun; skoðun minnihlutans, reyndist rétt. Sömuleiðis, ef einhver hefur skoðun sem hann telur að eigi rétt á sér þrátt fyrir lítinn eða engan hljómgrunn hjá öðrum, er ekki gott leyfa öðrum að kæfa hana með þröngsýni og ósveigjanleika. Það sem virðist fáránlegt í dag kann að verða almenn skynsemi á morgun.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×