Skoðun

Klamydía í frímínútum

Óskar Steinn Ómarsson skrifar
Þegar ég var í menntaskóla fékk ég allar námsbækur sem ég þurfti ókeypis. Skólinn gaf mér fartölvu sem ég greiddi fyrir um 15 þúsund krónur á ári og mátti svo eiga að lokinni útskrift. Þá fékk ég 30 þúsund króna styrk mánaðarlega fyrir það eitt að vera í skóla. Allt var þetta gert til að jafna stöðu okkar nemenda og láta okkur líða sem best í skólanum. Nemendur komu allir að sama borði, voru lausir við áhyggjur af námskostnaði og útskrifuðust flestir á tilsettum tíma.

Mikilvægust fannst mér þó heilsugæslan sem starfrækt var innan veggja skólans. Þangað gátu nemendur skólans og önnur ungmenni í bænum sótt þjónustu og ráðgjöf sérfræðinga. Þangað leitaði maður þegar manni leið illa og þurfti einhvern til að tala við. Þar gat maður sótt eins marga smokka og maður þurfti og stúlkur fengu lyfseðil fyrir getnaðarvarnarpillum. Eftir annasama helgi gat maður svo bankað upp á í frímínútunum og tekið kynsjúkdómapróf ef svo bar undir. Allt var þetta að sjálfsögðu nemendum að kostnaðarlausu.

Svona er þjónustan við nemendur í Kongsberg videregående skole í Noregi, þar sem ég lærði til stúdentsprófs. Svona er þetta ekki á Íslandi. Í flestum íslenskum framhaldsskólum eru ekki hjúkrunarfræðingar. Enginn sálfræðingur til að tala við ef manni líður illa og hvorki hægt að nálgast getnaðarvarnir né athuga hvort maður hafi nælt sér í klamydíu. Á sama tíma er sjálfsmorðstíðni ungmenna óásættanlega há hér á landi, útbreiðsla kynsjúkdóma með því hæsta sem gerist í allri Evrópu og brottfall úr skólum mikið.

Stjórnvöld verða að bregðast við þessu með því að gera heilbrigðisþjónustu aðgengilegri fyrir ungmenni. Í framhaldsskólum gætu hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar unnið að forvörnum og veitt ýmsa aðstoð á sviði geð- og kynheilbrigðis og hjálpað nemendum með áfengis- og vímuefnavanda, svo eitthvað sé nefnt. Í dag fer það algjörlega eftir fjárhagsstöðu skólanna og forgangsröðun skólastjórnenda hvort slík þjónusta sé í boði og því sitja ekki allir nemendur við sama borð hvað þetta varðar. Stjórnvöld eiga að forgangsraða í þágu heilbrigðis ungs fólks og tryggja að í öllum framhaldsskólum sé þessi þjónusta í boði. Með auknu aðgengi að viðeigandi heilbrigðisþjónustu gætum við dregið úr útbreiðslu kynsjúkdóma, bætt geðheilsu ungmenna og minnkað brottfall úr skólum.








Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×