Skoðun

Níðst á þeim, sem verst standa

Björgvin Guðmundsson skrifar
Ríkisstjórn Framsóknarflokksins, sem var að fara frá, ætlaði að koma á svokölluðu starfsgetumati fyrir öryrkja og hún ætlaði að hækka eftirlaunaaldurinn. Það átti að hækka aldurinn úr 67 árum í 70 ár í áföngum. Starfsgetumat felst í því að falla frá læknisfræðilegu örorkumati og byggja í staðinn örorkumatið á því hvað hver öryrki geti unnið mikið. Ríkisstjórn Framsóknar hvarf frá hvoru tveggja. Öryrkjabandalag Íslands mótmælti starfsgetumatinu harðlega, einkum vegna þess að það hefði ekki verið kynnt nóg og bandalagið benti á, að ef taka ætti upp starfsgetumat þyrfti það langan undirbúningstíma; m.a. þyrfti að tryggja, að öryrkjar, sem treystu sér til þess að vinna hlutastörf, fengju slík störf svo og full störf, ef öryrkjar treystu sér í þau. Eldri borgarar gerðu einnig verulegar athugasemdir við tillöguna um að hækka eftirlaunaaldurinn í 70 ár. Ríkisstjórnin ákvað að falla frá báðum þessum umdeildu atriðum.

Ætlar nýja stjórnin að endurtaka klúðrið?

En þrátt fyrir örlög þessara tveggja atriða er nýja stjórnin farin af stað með þau bæði aftur sbr. nýja stjórnarsáttmálann. Það er alveg augljóst, að ríkisstjórnin ætlar að reyna að spara ríkisútgjöld með því að hækka eftirlaunaaldurinn í 70 ár. Það á að láta eftirlaunafólkið sjálft greiða aukin útgjöld almannatrygginga! Nýja stjórnin gerir sér einnig vonir um að fækka öryrkjum með því að taka upp starfsgetumat. Öll vinna fyrrverandi ríkisstjórnar að málefnum öryrkja í almannatryggingafrumvarpinu var eitt allsherjarklúður.

Hlaðið undir þá, sem hafa meira en nóg!

Nú segist nýja stjórnin ætla að hækka frítekjumark vegna atvinnutekna og vinna að sveigjanlegum starfslokum. Fyrst skera Sjálfstæðismenn frítekjumark vegna atvinnutekna niður við trog en segjast svo skömmu síðar ætla að hækka það! En ekkert á að hækka lífeyri þeirra, sem einungis hafa lífeyri frá almannatryggingum enda þótt ekki sé unnt að lifa af þeim lífeyri.

Það er furðulegt. Það er eins og öllum stjórnmálamönnum sé það keppikefli að halda öldruðum og öryrkjum, sem ekki hafa lífeyrissjóð, við hungurmörk. En á sama tíma taka stjórnmálamennirnir sér ríflegar kauphækkanir sjálfir; um 44% hækkuðu laun þingmanna 13. október 2016 , áður en þeir mættu í vinnuna. Laun þingmanna hækkuðu þá í 1100 þúsund kr. á mánuði fyrir skatt en laun ráðherra hækkuðu í tvær milljónir króna á mánuði fyrir skatt. Lífeyrir aldraðra og öryrkja er hins vegar áfram rúmlega 200 þúsund á mánuði eftir skatt; hækkaði aðeins um 5-9%. Þetta er réttlætið á Íslandi í dag: Níðst er á þeim, sem verst standa en hlaðið meira og meira undir hina, sem hafa nóg.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×