Skoðun

Fjöldi aldraðra býr við bág kjör

Björgvin Guðmundsson skrifar
Ný ríkisstjórn fær það verkefni að bæta kjör aldraðra og öryrkja meira en nýsamþykkt lög um almannatryggingar gera ráð fyrir. Ég hef hamrað á því í blaðagreinum allt síðasta kjörtímabil, að kjör aldraðra og öryrkja væru óásættanleg; það yrði að bæta þau myndarlega. Aldraðir ættu að geta lifað með reisn ævikvöld sitt. Öryrkjar ættu einnig að fá mannsæmandi kjör. En stjórnarherrar fráfarandi ríkisstjórnar lömdu hausnum við steininn allt kjörtímabilið, vildu ekki viðurkenna að neitt væri að hjá eldri borgurum og öryrkjum.

Ég sagði alltaf, að dropinn holaði steininn, það mundi nást einhver árangur að lokum. Það rættist í kjölfar mikils baráttufundar Félags eldri borgara  í Háskólabíó. Þá loks hreyfði ríkisstjórnin sig, ákvað að hækka aðeins lífeyri þeirra lífeyrisþega, sem aðeins höfðu lífeyri frá almannatryggingum. Áður hafði Eygló félagsmálaráðherra þverneitað því, að þessi lífeyrir yrði hækkaður, sagði, að það væru svo fáir á „strípuðum“ lífeyri! Ríkisstjórnin gaf einnig eftir í öðru máli; ákvað að taka upp 25 þús. króna frítekjumark vegna tekna lífeyrisþega.

Fyrsti forustumaður fráfarandi stjórnar, sem tók undir málflutning eldri borgara þess efnis, að kjör aldraðra væru ekki nógu góð, var Lilja Alfreðsdóttir, nýkjörinn varaformaður Framsóknarflokksins. Hún ritaði grein í Fréttablaðið um mál eldri borgara og sagði: Fjöldi fólks (eldri borgara) býr við bág kjör og kvíðir framtíðinni. Hér er vandinn loks viðurkenndur en það er fyrsta skilyrðið fyrir því, að nægar kjarabætur séu veittar öldruðum. Mér kemur þessi jákvæða afstaða hennar ekki óvart, þar eð hún er dóttir Alfreðs Þorsteinssonar, fyrrverandi borgarfulltrúa, og þegar við Alfreð sátum saman í borgarstjórn var hann ákveðinn félagshyggjumaður. Við áttum gott samstarf.

Launamisrétti að aukast

Það er mikið verk að vinna að koma kjörum aldraðra og öryrkja í rétt horf. Það á ekki aðeins að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja þannig að þeir geti rétt framfleytt sér. Nei, hækka á lífeyrinn það myndarlega, að lífeyrisþegar geti lifað með reisn og þurfi aldrei að kvíða morgundeginum.

Ekkert bendir til þess að draga muni úr misrétti í þjóðfélaginu. Þvert á móti berast fréttir af því að launamisrétti sé að aukast. Ákveðið hefur verið að stórhækka enn laun þingmanna og ráðherra. Laun ráðherra hækka um hálfa milljón og verða um 2 milljónir á mánuði og laun þingmanna verða 1,1 milljón. Laun aldraðra og öryrkja eiga hins vegar að vera 195-227 þúsund á mánuði eftir skatt. Þetta er siðlaust.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×