Skoðun

Teitur er tilbúinn

Aron Leví Beck skrifar

Neytendasamtökin kjósa sér nýjan formann um næstu helgi eða laugardaginn 22. október. Þá kemur í ljós hver fær það mikilvæga hlutverk að vera talsmaður neytenda í landinu. Það er ferlega mikilvægt verkefni því þó við séum öll neytendur – og þannig stærsti hagsmunahópur í landinu – þá erum neytendur oft dreifðir og óskipulagðir. Neytendasamtökin þurfa því að vera öflug og formaður þeirra duglegur, drífandi og óragur við að taka slaginn. Formaðurinn gefur nefnilega tóninn fyrir allt starf samtakanna og ef hann er sterkur – þá eru samtökin sterk. Það er af þessari ástæðu sem ég styð Teit Atlason sem næsta formann.



Teitur hefur sýnt það og sannað sem varaformaður Neytendasamtakana síðustu ár að hann er rétti maðurinn til að vera talsmaður neytenda á Íslandi. Í hverju málinu af öðru hefur hann stigið fram og varið hagsmuni almennings, spurt óþægilegra en nauðsynlegra spurninga, veitt fyrirtækjum eðlilegt aðhald og barist gegn okri og svindli hvar sem það birtist. Teitur talar um málin eins og þau eru og er ekkert að sykurhúða hlutina þegar þeir eru ekki í lagi. Mér fannst til dæmis frábært hvernig hann beitti sér í Borgunarmálinu og um málefni Auðkennis, í umræðunni um umhverfisvænar merkingar (sem voru hvorki fugl né fiskur) og nú síðast hvernig erlendir ferðamenn eru stundum snuðaðir, sem bitnar á endanum á okkur öllum. Í öllum þessu málum sýndi Teitur frumkvæði, baráttuþrek og síðast en ekki síst djörfung því það er ekki allra að skora voldug öfl og fjársterk fyrirtæki á hólm. En talsmaður neytenda má aldrei vera hræddur – ef eitthvað er þá eiga þeir sem eru að svína á neytendum að vera hræddir við hann!



Í öllum þessum málum og mörgum fleirum hefur Teitur sýnt að hann er rétti maðurinn í starfið. Og ég held að Neytendasamtökin séu líka tilbúin til að stíga betur upp og berjast enn betur fyrir málefnum neytenda. Þau þurfa að gera það því það víða er pottur brotinn og það þarf alltaf að vera á verði og sækja fram með hagsmuni neytenda. Það gerir það enginn nema við sjálf.



Núverandi formaður og allur sá fjöldi fólks sem hefur starfað í neytendamálum á undanförnum árum og áratugum hefur staðið sig vel og margir sigrar hafa unnist. En það má og þarf að gera enn betur. Nýir samskiptamiðlar fela í sér alls konar tækifæri til þess, en það er ekki nóg að hafa tæki og tól, það þarf líka að beita þeim. Til þess þurfum við líka ferska og kjarkaða forystumenn, með góða dómgreind og skýra rödd.



Teitur er tilbúinn.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×