Skoðun

Kjósum gott líf

Guðrún Hagsteinsdóttir skrifar
Öflugt, fjölbreytt og samkeppnishæft atvinnulíf er forsenda góðra lífskjara hér á landi. Samkeppnishæfni íslensks iðnaðar ræðst að miklu leyti af þeirri umgjörð sem stjórnvöld á hverjum tíma skapa. Þegar kosið er til Alþingis er því í reynd verið að kjósa um samkeppnishæfni sem er forsenda góðs lífs hjá öllum landsmönnum.

Í aðdraganda þingkosninga sem verða í október vilja Samtök iðnaðarins leggja sitt af mörkum til umræðunnar. 1.400 fyrirtæki og sjálfstæðir atvinnurekendur mynda SI og eru þar af leiðandi stærstu samtök atvinnurekenda á Íslandi. Samtökin vinna að því að efla íslenskan iðnað og samkeppnishæfni hans. Það er mikilvægt að frambjóðendur allra flokka taki tillit til helstu málefna atvinnulífsins til að bæta samkeppnishæfni Íslands. Því viljum við að frambjóðendur setji okkar málefni á oddinn þegar þeir sannfæra kjósendur um að setja X á réttan stað. Samtök iðnaðarins ætla að leggja fram sex málefni sem skipta atvinnulífið og þar með fólkið í landinu miklu máli. Þessi málefni snúa að efnahagslegum stöðugleika sem er nauðsynlegur sjálfbærum vexti, húsnæði sem er grunnþörf bæði yngri og eldri kynslóða, menntun sem er forsenda bættra lífskjara og aukinnar framleiðni, samgöngum og innviðum sem eru lífæð heilbrigðs samfélags, orku og umhverfi en fjölbreyttur iðnaður vill starfa í sátt við umhverfið og nýsköpun sem er drifkraftur verðmætasköpunar og gjaldeyristekna. Öll þessi málefni leggjum við inn í umræðuna á næstunni.

Þegar ungt fólk velur sér menntun eða starf viljum við að Ísland bjóði upp á bestu kostina. Það skiptir máli fyrir samfélagið að það takist að halda í unga fólkið okkar á sama tíma og hugað er að þörfum eldri kynslóðanna. Til þess að svo megi verða þurfa stjórnvöld að hafa skýra framtíðarsýn og áræðni til að taka ákvarðanir sem leiða til árangurs. Það eru margar áskoranir sem bíða nýrrar ríkisstjórnar og því mikilvægt að forgangsraða með það að markmiði að á Íslandi sé boðið upp á gott líf.

Við viljum eiga gott samstarf við stjórnvöld að kosningum loknum og væntum þess að þau séu reiðubúin að hlusta. Mestu máli skiptir að ákvarðanir nýrra stjórnvalda leiði til framfara á Íslandi bæði fyrir fólk og fyrirtæki.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×