Skoðun

Markmiðin eru skýr

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Þegar nær dregur kosningum er freistandi fyrir stjórnmálahreyfingar að leggja fram einfaldar lausnir á sem flestum málum. Gallinn er sá að fæst mál eru leyst með einföldum hætti og meiru skiptir að leggja fram lausnir sem lifa af pólitískar sveiflur.

Eitt þeirra mála sem erfitt hefur reynst að ná samfélagssátt um er fiskveiðistjórnunarkerfið. Þar hefur Vinstrihreyfingin – grænt framboð lagt fram skýr markmið um að arðurinn af hinni sameiginlegu auðlind renni til fólksins í landinu þannig að hægt sé að byggja upp í heilbrigðisþjónustu og menntakerfi fyrir okkur öll. Ennfremur að sjávarútvegurinn sé rekinn með sjálfbærum hætti þannig að ekki sé gengið um of á auðlindina. Ennfremur að tryggja stöðugleika í hinum dreifðu byggðum.

Ástæða þess að á síðasta kjörtímabili voru veiðigjöld hækkuð var sú stefna vinstristjórnarinnar að arður af sameiginlegum auðlindum, hvort sem það er fiskur í sjó eða eitthvað annað, eigi að renna til samfélagsins og nýtast þannig okkur öllum. Það var forgangsverkefni núverandi ríkisstjórnar að lækka veiðigjöldin og í takt við það höfum við séð arðgreiðslur aukast til eigenda stórútgerðarinnar.

Markmiðin eru stóra málið og við Vinstri-græn erum ávallt reiðubúin til að skoða leiðir að þeim markmiðum. Ein þeirra gæti verið uppboð aflaheimilda en nýlega var slíkt tilraunauppboð haldið í Færeyjum þar sem stefnt er að sömu markmiðum. Á góðum fundi nú um helgina voru kostir og gallar slíkrar leiðar reifaðir. Einhvers konar uppboð hefur lengi verið hluti af stefnu Vinstri-grænna en í stefnunni er lagt til að kalla inn hluta af heimildunum og úthluta þeim aftur með skilgreindum hætti.

Opinberan uppboðsmarkað með aflaheimildir mætti þróa í áföngum og tryggja að þar yrðu ákveðin skilyrði uppfyllt, til dæmis hvað varðar sjálfbæra nýtingu, byggðafestu og auðlindaarðinn. Í þessu máli skipta markmiðin meira máli en leiðirnar og erfitt er að trúa öðru en að flestir séu sammála um þau meginmarkmið sem hér hafa verið rakin.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×