Skoðun

Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur

Nú styttist í alþingiskosningar. Ef marka má yfirlýsingu leiðtoga ríkisstjórnarinnar verður kosið í október. Það er stuttur tími til stefnu og ekki seinna vænna að athuga hvað á að kjósa. Ég tel, að aldraðir og öryrkjar eigi að athuga hvaða flokkar og stjórnmálamenn styðji kjarabætur þeim til handa. Kjörseðillinn er eina vopn aldraðra og öryrkja. Kjörseðillinn er þeirra  „verkfallsvopn“. Það ríður á að beita því rétt.

Það þarf að kanna kvaða stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn stóðu með öldruðum og öryrkjum við afgreiðslu frumvarps til fjárlaga í desember 2015. Það þarf að athuga hvaða flokkar og stjórnmálamenn hafa viljað hækka lífeyri aldraðra í 300 þúsund krónur á mánuði eins og verkafólk á að fá samkvæmt samningum. Það þarf að kanna hverjir vildu veita öldruðum og öryrkjum afturvirkar kjarabætur eins og ráðherrar, þingmenn, dómarar og umboðsmaður Alþingis fengu. Og hvaða þingmenn stóðu gegn því. Það er nokkur vinna í að að athuga þetta. En þetta er nauðsynleg vinna svo unnt sé að greiða atkvæði með kjarabótum til handa öldruðum og öryrkjum.

En svo þarf einnig að athuga núna hvort stjórnarflokkarnir eru búnir að efna kosningaloforðin, sem þeir gáfu öldruðum og öryrkjum fyrir alþingiskosningarnar 2013. Ef alþingismenn vilja komast í vinnu hjá okkur áfram þarf að athuga hvernig þeir hafa staðið sig. Niðurstaðan er þessi: Leiðtogar og frambjóðendur stjórnarflokkanna gáfu öldruðum og öryrkjum það loforð fyrir alþingiskosningarnar 2013, að lífeyrir aldraðra og öryrkja yrði leiðréttur vegna kjaragliðnunar krepputímans 2009-2013. Sjálfstæðisflokkurinn lofaði að gera þetta þannig, að lífeyrir aldraðra yrði hækkaður til samræmis við hækkun lægstu launa 2009-2013. Framsóknarflokkurinn samþykkti, að lífeyrir yrði leiðréttur vegna kjaragliðnunar ( kjaraskerðingar) krepputímans. Það er ekki farið að efna þetta stóra loforð ennþá nú rétt fyrr kosningar.

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sendi öldruðum bréf 2013 og lofaði þeim því, að allar tekjutengingar í kerfi almannatrygginga yrðu afnumdar. Það þýddi að hætta að skerða lífeyri aldraðra hjá almannatryggingum vegna greiðslna úr lífeyrissjóði og vegna tekna af atvinnu og fjármagni. Þetta þýddi miklar kjarabætur fyrir aldraða, ef efnt yrði. Það þýðir ekki fyrir Bjarna að biðja um vinnu áfram hjá þjóðinni nema hann efni þetta stóra loforð fyrst. Og loforðin voru fleiri. Stjórnarflokkarnir lofuðu að afturkalla alla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá árinu 2009. Það voru sex atriði. Það er búið að efna þrjú þeirra en þrjú eru eftir. Það verður að efna þau líka

Kjörseðillinn er beitt vopn, ef hann er notaður rétt.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×