Skoðun

Engar kjarabætur í tillögum um almannatryggingar!

Björgvin Guðmundsson skrifar
Tillögur að nýjum lögum um almannatryggingar veita lífeyrisþegum engar kjarabætur. Niðurstaðan er jafnvel verri: Sumir hópar lífeyrisþega verða verr settir en áður. Þeirra kjör munu versna!

Tillögurnar gera ráð fyrir að fækka flokkum; sameina á grunnlífeyri, tekjutryggingu og framfærsluuppbót í einn nýjan flokk lífeyris. Heimilisuppbót verður hins vegar áfram sérstakur flokkur. Nýi flokkurinn verður nákvæmlega að sömu upphæð, ásamt heimilisuppbótinni og gömlu flokkarnir voru samanlagt, eða 246 þúsund krónur fyrir skatt hjá einhleypingi, rúmlega 212 þúsund eftir skatt. Frítekjumörk verða felld niður en skerðing tekna 45% nema séreignalífeyrissparnaðar og fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga. Breytingarnar munu koma þokkalega út fyrir þá öryrkja, sem hafa mikla starfsgetu; eru með 50 prósent eða meiri starfsgetu en þeir öryrkjar,sem eru 75 prósent öryrkjar eða meira verða verr settir á vinnumarkaði en áður. Eins er með eldri borgara. Ef þeir geta unnið, verða þeir verr settir en áður; munu sæta meiri skerðingu en fyrr.

Aldurstengd örorkuuppbót verður felld niður en í staðinn kemur 22 þúsund króna uppbót á mánuði fyrir þá, sem urðu öryrkjar 24 ára eða fyrr.

Gert er ráð fyrir nýju matskerfi fyrir öryrka,starfsgetumati í stað læknisfræðilegs mats. Þeir sem eru orðnir 55 ára þurfa þó ekki að fara í það mat en allir undir þeim aldri.

Lagt er til,að lífeyrisaldurinn verði hækkaður í 70 ár á 24 árum. Mun aldurinn verða hækkaður um tvo mánuði á ári í tólf ár og síðan um einn mánuð á ári í önnur tólf ár.

Stjórnvöld munu hugsa gott til glóðarinnar að láta lífeyrisþega sjálfa greiða kostnaðinn við breytingar á kerfi almannatrygginga með því að hækka lífeyrisaldurinn í 70 ár.

Ég gerði mér vonir um, að nýjar tillögur um almannatryggingar myndu fela í sér verulegar kjarabætur fyrir aldraða og öryrkja, þar eð lífeyrir er í dag alltof lágur. En það eru engar kjarabætur, heldur kjaraskerðing hjá vissum hópum!




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×