Skoðun

Á flótta undan staðreyndum

Ragnar Þorvarðarson skrifar
„Vilt þú að Ísland taki á móti 50 flóttamönnum á næstu tveimur árum?“ Rúmlega 85% þátttakenda í skoðanakönnun Útvarps Sögu í júlí svöruðu spurningunni neitandi. Könnunin var framkvæmd í kjölfarið á tilkynningu íslenskra stjórnvalda um móttöku 50 flóttamanna næsta árið sem er liður í samvinnuverkefni nokkurra Evrópuþjóða um móttöku flóttafólks.

Flóttamannanefnd sér um undirbúninginn hér á landi í samráði við sveitarfélög og Rauða krossinn. Í umfjöllun Fréttablaðsins fyrr í sumar kom fram að fjöldi kvótaflóttamanna sem Ísland mun taka við á næstu tveimur árum verði þannig hlutfallslega svipaður og skuldbindingar Þýskalands og Frakklands á sama tímabili. Á vef velferðarráðuneytisins kemur fram að frá árinu 1956 til dagsins í dag hafi komið hingað til lands 511 flóttamenn.

Bara á þessu ári hafa yfir tvö þúsund einstaklingar látist á flótta yfir Miðjarðarhafið samkvæmt tölum frá Alþjóða fólksflutningastofnuninni (IOM). Frá Bretlandi bárust í vikunni fréttir um ítrekaðar tilraunir örvæntingarfullra flóttamanna til að komast til landsins í gegnum Ermarsundsgöngin. Umræðan og umfjöllun um málefni hælisleitenda og flóttamanna innan Evrópu byggir því miður ekki alltaf á staðreyndum. Dálkahöfundur Guardian fjallaði á föstudag um málið og vitnar í tölur frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sem staðfesta að 86% af öllum flóttamönnum eru í dag staðsettir í minna þróuðum löndum heimsins, en Tyrkland hýsir þar flesta eða um 1,6 milljón manns.

Með samskiptum og upplýstri umræðu má draga úr þeim ótta sem stafar af hinu óþekkta. Martin Patzelt, þingmaður Kristilegra demókrata í Þýskalandi, ákvað fyrir rúmum mánuði að bjóða tveimur flóttamönnum frá Erítreu að búa heima hjá sér. Í viðtali við breska ríkisútvarpið sagðist hann þannig vilja tryggja flóttafólki bæði andlit og nafn, sem dragi úr klofningi, fjandskap og ótta meðal almennings. Hann hvatti fólk til að ræða málefni flóttafólks af opnum hug. Hér á landi þurfum við að varast að umræðan færist í öfgafullan farveg sem byggir á ósönnum staðhæfingum og upphrópunum. Tökum heldur vel á móti þeim flóttamönnum sem hingað koma til landsins og styðjum við bakið á fólki sem hefur þurft að flýja heimkynni sín vegna stríðs eða ofsókna af ýmsu tagi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×