Skoðun

Grunnlífeyrir í grannlöndunum margfalt hærri

Björgvin Guðmundsson skrifar
Þegar lögin um almannatryggingar voru sett árið 1946, var svokölluð nýsköpunarstjórn við völd í landinu. Þrír flokkar mynduðu þá stjórn: Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Sósíalistaflokkur. Ríkisstjórnin lýsti því yfir, að almannnatryggingar á Íslandi ættu að vera í fremstu röð slíkra trygginga í Norður-Evrópu. Og allir á Íslandi ættu að njóta þessara trygginga óháð stétt og efnahag. Almannatryggingarnar fóru vel af stað. Í byrjun voru þær eins og slíkar tryggingar gerðust bestar í grannlöndum okkar. En í dag rekum við lestina. Almannatryggingarnar hjá öllum hinum norrænu ríkjunum greiða sínum eldri borgurum mun hærri lífeyri en við gerum.

Stjórnmálamenn bera sökina

Hvað hefur gerst? Hvernig má það vera, að Ísland standi hinum norrænu ríkjunum langt að baki í þessu efni? Að sjálfsögðu bera stjórnmálamenn hér stærstu sökina. Þeir hafa ekki staðið sig í því að gæta þess, að lífeyrir almannatrygginga hækkaði nægilega mikið til þess að tryggja öldruðum og öryrkjum sómasamlegan lífeyri. Og ekki nóg með það heldur hafa þeir einnig tekið upp skerðingu á lífeyri almannatrygginga til aldraðra vegna greiðslna til þeirra úr lífeyrissjóðum. Það verður að stöðva þá skerðingu strax. Þessi skerðing er blettur á almannatryggingunum. Hún hefur valdið svo mikilli óánægju, að kerfið er í hættu. Þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir var gert ráð fyrir því, að þeir yrðu viðbót við almannatryggingarnar. Það var aldrei reiknað með því, að lífeyrissjóðirnir mundu valda skerðingu á lífeyri aldraðra frá almannatryggingum.

Lífeyrir miklu hærri í grannlöndunum

Á Íslandi er grunnlífeyrir eldri borgara 36 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt. Í Svíþjóð er grunnlífeyrir (garantipension) 124 þúsund krónur á mánuði, í Noregi 125 þúsund krónur á mánuði, í Danmörku 118 þúsund, í Finnlandi er þessi lífeyrir (basic state pension) 95 þúsund og í Bretlandi er grunnlífeyrir (state pension) 129 þúsund kr. Í Noregi er viðbótarlífeyrir (særtillegg) 125 þúsund krónur á mánuði eins og grunnlífeyririnn. Í Danmörku er viðbótarlífeyrir (tillæg) til eldri borgara alls 123 þúsund krónur á mánuði. Viðbótarlífeyrir er greiddur þeim, sem hafa litlar eða engar aðrar tekjur frá almannatryggingum. Hér að framan er í öllum tilvikum átt við einstaklinga. Grunnlífeyrir aldraðra í grannlöndum okkar er í mörgum tilvikum 3,5 sinnum hærri en grunnlífeyrir hér. Það er greinilega eitthvað að kerfinu hérna.

Ef litið er á heildarupphæð lífeyris einhleypra aldraðra frá almannatryggingum í Noregi kemur í ljós, að hún er allt að 385 þúsund kr. á mánuði fyrir skatt miðað við 225 þúsund kr. hér. Lífeyrir aldraðra er því miklu hærri í Noregi en hér.

Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×