Skoðun

Jöfnuður er síst of mikill

Elín Björg Jónsdóttir skrifar
Baráttudagur verkalýðsins er að þessu sinni haldinn hátíðlegur í skugga alvarlegustu deilna á vinnumarkaði í áraraðir. Með kjarasamningum á síðasta ári var tækifæri skapað fyrir stjórnvöld og launagreiðendur að ávinna sér traust og sýna í verki að þau hefðu hagsmuni heildarinnar í huga. En í stað þess að leggjast á eitt með almenningi og vinna sameiginlega að bættum hag fjöldans var haldið inn á braut sérhagsmuna.

Laun afmarkaðra hópa hækkuðu langt umfram það sem fjölmennustu og lægst launuðu hóparnir fengu. Ríkisstjórnin gaf eftir tekjustofna á þá efnamestu. Áfram var skorið niður á flestum sviðum opinberrar þjónustu, skattar á matvæli voru hækkaðir og réttur til atvinnuleysisbóta skertur.

Með aðgerðum sínum hafa stjórnvöld og atvinnurekendur hafnað því að vinna sameiginlega á grunni stöðugleika og samstöðu. Þeir hæst launuðu skammta sér enn hærri laun, bónusa og milljarða arðgreiðslur. Á meðan eru hóflegar hækkanir lægstu launa sagðar ógna efnahagslífinu í heild. Horfið var frá jafnaðarhugsjóninni. Þess vegna er staðan á vinnumarkaði eins og hún er nú.

Undanfarna daga hafa ráðamenn ítrekað vegið að verkfallsrétti launafólks og fjármálaráðherra veltir því upp í alvöru hvort gengið hafi verið of langt í að jafna kjör fólks. Ummælin eru látin falla skömmu eftir lækkun auðlindagjalda á útgerðir, afnám auðlegðarskatts á þá efnamestu og hækkun matarskatts.

Fjöldi fólks hefur ekki efni á að kaupa sér húsnæði og ástandið á leigumarkaði er afleitt. Þrátt fyrir það gera stjórnvöld lítið sem ekkert í húsnæðismálunum. Er nema von að launafólk upplifi mikinn ójöfnuð og óréttlæti þegar framkoman er með þessum hætti? Krafa launafólks er að stjórnvöld búi svo um að fólk sjái hag sínum best borgið á Íslandi. Hér þarf að hækka launin, auka kaupmáttinn og tryggja öllum viðunandi húsnæði á viðunandi verði. Við þurfum að koma á fjölskylduvænna samfélagi svo að ungt fólk öðlist trú á að hér sé best að vera.

Ég vona að ríkisstjórnin, sveitarstjórnir landsins og launagreiðendur allir hlýði á kall launafólks á baráttudegi verkalýðsins. Kall um réttlátara þjóðfélag þar sem jöfnuður allra er hafður að leiðarljósi.

Launafólki um land allt óska ég til hamingju með daginn um leið og ég vonast til sem flestir taki þátt í hátíðarhöldum dagsins.






Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×