Skoðun

Lífeyrir aldraðra hækki í 300 þúsund kr. á mánuði

Björgvin Guðmundsson skrifar
Verkalýðshreyfingin býr sig nú undir hörð átök í kjaramálum. Fyrstu verkföllin hafa verið boðuð. Kjarasamningar eru lausir og flest verkalýðsfélög hafa sett fram kröfur sínar um kjarabætur. Starfsgreinasambandið fer fram á, að laun hækki á þremur árum í 300 þúsund krónur á mánuði. Þetta er sú lágmarksupphæð, sem launþegar og allur almenningur þurfa sér til framfærslu.

Lægra en meðaltalsútgjöld

Þetta er lægra en neyslukönnun Hagstofunnar segir að séu meðaltalsútgjöld einstaklinga til neyslu í landinu, en þau nema 321 þúsund krónum á mánuði án skatta. Félag eldri borgara í Reykjavík hefur sett fram þá kröfu að lífeyrir aldraðra hækki í áföngum í samræmi við neyslukönnun Hagstofunnar og verði 321 þúsund krónur á mánuði.

ASÍ styðji kröfu lífeyrisþega

Nú þegar Starfsgreinasambandið hefur sett fram kröfu um 300 þúsund króna laun á mánuði er eðlilegt, að aldraðir og öryrkjar setji fram hliðstæða kröfu, þ.e. að laun (lífeyrir) lífeyrisþega hækki í sömu upphæð og kaup launþega. Landssamband eldri borgara hefur áður sett fram slíka kröfu og leitað stuðnings ASÍ við þá kröfugerð. Eldri borgarar vænta þess, að verkalýðshreyfingin taki kröfur lífeyrisþega upp í viðræðum við ríkisstjórnina í tengslum við væntanlega kjaradeilu. ASÍ þarf að setja fram þá kröfu, að lífeyrir aldraðra og öryrkja hækki í nákvæmlega sömu upphæð og laun verkafólks munu hækka í. Það er eðlileg og réttmæt krafa og það er eðlilegt að verkalýðshreyfingin styðji aldraða og öryrkja í þessu efni.

Hækki í takt við laun

Í lögum segir, að við ákvörðun lífeyris aldraðra og öryrkja skuli taka mið af launaþróun en að lífeyrir skuli aldrei hækka minna en vísitala neysluverðs. Þetta lagaákvæði hefur verið þverbrotið. Lífeyrir aldraðra hefur hvergi nærri hækkað eins mikið og lægstu laun. Aldraðir og öryrkjar hafa orðið eftir í launaþróuninni.

Lífeyrir iðulega verið frystur

Lífeyrir aldraðra og öryrkja hefur iðulega verið frystur á sama tíma og lægstu laun hafa hækkað. Þetta er kallað kjaragliðnun og aldraðir krefjast þess, að hún verði strax leiðrétt vegna krepputímans og lífeyrir hækkaður um 20% áður en yfirstandandi kjaradeila leysist. Síðan þarf að gæta þess við lausn kjaradeilunnar og framvegis, að lífeyrir hækki ávallt jafnmikið og lægstu laun.

Krefjast leiðréttingar strax

Kaupmáttur launa verkafólks jókst um 5,8% árið 2014. Lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkaði hins vegar aðeins um 3% um síðustu áramót. Hér hefur því enn átt sér stað kjaragliðnun. Eldri borgarar krefjast þess, að þetta verði strax leiðrétt og lífeyrir aldraðra hækkaður strax vegna þessarar kjaragliðnunar. Nóg er ranglætið fyrir.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×