Skoðun

Afglæpavæðing einkaneyslu

Ingvar Þór Björnsson og Inga Björk Bjarnadóttir skrifar

Á nýliðnum landsfundi Samfylkingarinnar var samþykkt tillaga Ungra jafnaðarmanna um að horfst verði í augu við þá staðreynd að refsirammi vímulöggjafarinnar sé of strangur og sé ekki til þess fallinn að aðstoða fólk sem stríðir við vímuefnavanda. Þar af leiðandi ætti varsla neysluskammta fíkniefna ekki að vera refsiverð og auknu fjármagni að vera veitt í forvarnir og fræðslu í stað löggæslu.



Árið 1997 samþykktu ríkisstjórn Íslands og Reykjavíkurborg stefnumörkun sem bar yfirskriftina Vímuefnalaust Ísland árið 2002. Við gerum okkur öll grein fyrir hvernig til hefur tekist og erum við jafnvel fjær markmiðinu en árið 1997. Því liggur það í augum uppi að ríkjandi stefna, refsistefnan, gengur ekki upp og brýn nauðsyn er að skoða aðrar leiðir sem gætu leitt til breytinga til batnaðar er varða þessi málefni.



Núverandi refsistefna í fíkniefnamálum hefur ekki reynst árangursrík við að draga úr neyslu fíkniefna eða koma fíklum til aðstoðar. Þá má það teljast beinlínis óréttlátt, að fyrir vörslu neysluskammta fíkniefna, lendi fólk á sakaskrá sem takmarki mjög atvinnutækifæri þess og ferðafrelsi til frambúðar. Rannsóknir sýna að þeir sem eiga við félagsleg, heilsufarsleg eða persónuleg vandamál að etja eru mun líklegri til að verða fíkn að bráð. Gríðarlega mikilvægt er því að líta á fíkniefnaneyslu sem velferðar- og heilbrigðismál fremur en sem dómsmál. Fíklum þarf að vera unnt að leita sér aðstoðar án ótta um gríðarháar sektir og skerta atvinnumöguleika.



Reynslan góð

Skiljanlegt er að það heyrist í gagnrýnisröddum þegar rætt er um að afnema refsistefnuna og afglæpavæða fíkniefni einfaldlega vegna þess að við erum að stíga skref inn á áður óþekktar brautir er varða þessi mál. Reynslan er þó með afbrigðum góð. Afglæpavæðing er ekki líkleg til að auka neyslu, né þarf afglæpavæðing að gefa það til kynna að fíkniefnaneysla sé samfélagslega samþykkt, svo lengi sem öflugt fræðslu- og forvarnarstarf fari fram meðfram varfærnislegum skrefum í átt til afglæpavæðingar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lagði til ekki alls fyrir löngu að afglæpavæða einkaneyslu á fíkniefnum og í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum er mælt með því sama. Þessi leið hefur verið farin í fjölmörgum löndum og sífellt bætist í hóp þeirra landa sem afglæpavæða einkaneyslu fíkniefna og niðurstaðan er ávallt jákvæð.



Nauðsynlegt er að átta sig á að refsistefnan er ekki að virka og að finna þurfi aðra leið í þessum málum. Tökum fíklana frekar inn í heilbrigðiskerfið og hjálpum þeim að vinna bug á fíkninni fremur en að refsa neytendum og fara með þá inn í dómskerfið sem dregur hvorki úr neyslu né neikvæðum áhrifum fíkniefnamisnotkunar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×