Skoðun

Hvað tefur í húsnæðismálum?

Elín Björg Jónsdóttir skrifar
BSRB hefur lengi bent á mikilvægi þess að brugðist verði sem fyrst við vanda og breyttum þörfum á húsnæðismarkaði til að tryggja öllum viðunandi húsnæði á viðunandi kjörum. Í nýútkominni skýrslu Velferðarvaktarinnar er sérstaklega bent á mikilvægi þess að huga að öryggi í húsnæðismálum. Brýnt er því að mati BSRB að setja í forgang uppbyggingu almenns leigumarkaðar og samræmt húsnæðisbótakerfi.

Nauðsynlegt er að gera leiguformið að raunverulegum valkosti í búsetumálum á Íslandi. BSRB telur að með almennu leigukerfi að norrænni fyrirmynd verði hægt að bjóða upp á langtímaleigu húsnæðis á viðunandi kjörum. Þörf á auknu framboði leiguhúsnæðis er mikil en um 20% félagsmanna BSRB hafa lýst því í kjarakönnunum bandalagsins að þeir vilji færa sig úr eigin húsnæði yfir á leigumarkað ef búsetuöryggi væri tryggt.

Það er jafnframt grundvallaratriði í stefnu BSRB að stuðningur hins opinbera við ólík búsetuform verði jafnaður. Taka verður strax upp samræmdar húsnæðisbætur í stað vaxta- og leigubóta til að stuðla að frekari jöfnuði fólks. Með hærri fjárstuðningi til leigjenda í formi samræmdra húsnæðisbóta verður fjölskyldum því gefið raunverulegt val um búsetuform.

Nú er bráðum ár liðið frá því að tillögur verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála voru kynntar en engin frumvörp hafa enn verið lögð fram af hálfu félags- og húsnæðismálaráðherra. Ljóst er að mikillar óþreyju er farið að gæta eftir því að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum líti dagsins ljós.

Ríkið verður að koma með öflugum hætti að uppbyggingu leigufélaga og gera nauðsynlegar breytingar á laga- og reglugerðarumhverfi þannig að leigufélög geti sinnt sínu mikilvæga hlutverki. BSRB bendir á að þeim bráðavanda sem nú blasir við á húsnæðismarkaði verður ekki brugðist við nema stjórnvöld leggi nú fram nauðsynlega fjármuni bæði í uppbyggingu leigufélaga og í nýtt og samræmt húsnæðisbótakerfi þar sem stuðningur við leigjendur verði aukinn. BSRB kallar því eftir að félags- og húsnæðismálaráðherra komi án tafar fram með raunhæfar tillögur til að tryggja húsnæðisöryggi og jafnræði á húsnæðismarkaði.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×