Skoðun

Lífeyrir aldraðra borgara er skammarlega lágur

Björgvin Guðmundsson skrifar
Stjórnvöld fara skammarlega með lífeyrisþega. Lífeyrir almannatrygginga til aldraðra og öryrkja er svo lágur, að engin leið er að lifa mannsæmandi lífi af honum. Einhleypur ellilífeyrisþegi, sem einungis hefur tekjur frá almannatryggingum, fær 187 þús. kr. á mánuði eftir skatt. Megnið af þeirri fjárhæð fer í húsaleigu, ef viðkomandi þarf að búa í leiguhúsnæði. Það er þá lítið eftir fyrir mat, fatnaði, rafmagni og hita, síma, tölvukostnaði og öllum öðrum útgjöldum. Ástandið er miklu betra hjá þeim, sem búa í eigin húsnæði. En þó er afkoman erfið. Þessar smánarbætur aldraðra frá TR duga rétt fyrir allra brýnustu nauðsynjum en ekkert er til fyrir skemmtunum, gjöfum eða öðru til þess að lífga upp á tilveruna. Ekki er inni í myndinni að reka bíl af þessum lágu bótum.

Eldri borgarar hafa byggt upp það þjóðfélag, sem við búum við í dag. Eldri borgarar eiga það því inni að fá að búa með reisn síðustu ár ævi sinnar.

Vantar 134 þús. kr. á mánuði

Samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar eyðir hver einstaklingur til jafnaðar 321 þús. kr. á mánuði í neyslu. Engir skattar eru innifaldir í þeirri tölu. Ellilífeyrir Tryggingastofnunar er hins vegar aðeins 187 þús. kr. á mánuði eftir skatta hjá einhleypingi. Það vantar því 134 þús. kr. á mánuði til þess að lífeyrir TR dugi fyrir meðaltals neysluútgjöldum. Með því að engir skattar eru inni í neyslukönnun Hagstofunnar er um sambærilegar tölur að ræða. Þegar litið er á þessar tölur verður ljóst hvað stjórnvöld búa illa að eldri borgurum.

Hér hefur verið fjallað um þá eldri borgara, sem einungis hafa tekjur frá almannatryggingum. En ástandið er lítið betra hjá þeim, sem hafa lífeyri úr lífeyrissjóði vegna mikilla skerðinga á tryggingabótum hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þorri lífeyrisþega hefur fremur lélegan lífeyrissjóð, 70-100 þús. kr. á mánuði. Þeir, sem hafa 70 þús. kr. á mánuði úr lífeyrissjóði eru engu betur settir en þeir, sem aldrei hafa greitt í lífeyrissjóð. Tryggingastofnun skerðir lífeyri þeirra um hátt í 70 þús. kr. á mánuði.

Hækka verður lífeyri um 20% strax

Augljóst er, að hækka verður ríflega lífeyri eldri borgara, eigi þeir að geta lifað mannsæmandi lífi af honum. Það er lágmark að hækka lífeyrinn um 40-50 þús. kr. á mánuði enda þótt stefna eigi að 134 þús. króna hækkun til þess að ná neysluviðmiði Hagstofunnar. Það vill svo til, að ríkisstjórnin skuldar öldruðum og öryrkjum einmitt 44 þúsund króna hækkun á mánuði (20%) ætli hún að standa við loforðið um að leiðrétta lífeyrinn vegna kjaragliðnunar á krepputímanum. En það þarf einmitt að hækka lífeyri um 20% til þess að framkvæma þá leiðréttingu. Þessari leiðréttingu var lofað í kosningabaráttunni 2013. Við hana verður að standa strax.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×