Skoðun

Hversu há þarf framfærsla eldri borgara að vera?

Björgvin Guðmundsson skrifar
Engin könnun hefur verið gerð á því hvað eldri borgarar þurfi mikið sér til framfærslu, þegar þeir eru hættir störfum. Raunar hefur Hagstofan ekki kannað framfærslukostnað almennt. En hún hefur reglulega kannað neyslukostnað, gert neyslukannanir. Samkvæmt síðustu neyslukönnun Hagstofunnar er meðaltalsneysla einhleypinga 321 þúsund krónur á mánuði. Húsnæði er inni í þeirri tölu og nær allir neysluliðir. Þegar velferðarráðuneytið kannaði árið 2011 hvert ætti að vera dæmigert neysluviðmið var útkoman svipuð og í neyslukönnun Hagstofunnar. Ljóst er því að miða má við hana.

Ég tel, að neyslukönnun Hagstofunnar eigi við eldri borgara eins og aðra. Sumir liðir könnunarinnar, eins og lækniskostnaður og lyfjakostnaður, eru þó lægri en meðaltalsraunkostnaður þessara kostnaðarliða hjá eldri borgurum. Eldri borgarar eyða m.ö.o. hærri upphæðum í læknis- og lyfjakostnað en nemur meðaltali slíks kostnaðar hjá almenningi.

Lífeyrir aldraðra hjá Tryggingastofnun er aðeins 192 þúsund krónur á mánuði eftir skatta (einhleypingar, sem ekki hafa aðrar tekjur en frá TR). Það vantar því 129 þúsund krónur á mánuði upp á, að lífeyrir TR nái meðal­tali neyslukönnunar Hagstofunnar. Tölurnar eru sambærilegar, þar eð í báðum tilvikum eru þær án skatta.

FEB vill miða við neyslukönnunina

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur ítrekað ályktað á aðalfundum  sínum að hækka ætti lífeyrinn frá almannatryggingum um 129 þúsund krónur á mánuði svo hann næði upphæð neyslukönnunar Hagstofunnar. En stjórnvöld hafa hundsað þá ályktun eins og þau hafa hundsað aðrar ályktanir eldri borgara!

Félag eldri borgara hefur boðið, að þessi munur, 129 þúsund krónur, yrði jafnaður í þremur áföngum. En ríkisstjórnin hefur virt þá ósk að vettugi. Það eina sem stjórnin býður eru rúmar 20 þúsund krónur af þessum 129 þúsundum! Rausnarlegt það, þegar nógir peningar eru til. Stjórnin hefur meira að segja afsalað sér sköttum!

Ef lífeyrir eldri borgara hjá TR hækkar um 14,5% eins og lágmarkslaun hækkuðu hækkar lífeyririnn um 32.625 krónur á mánuði. Lífeyrir aldraðra, sem einungis hafa tekjur hjá TR, er í dag 225 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt. 14,5% hækkun gerir 32.625 kr.

Ef lífeyrir aldraðra hjá TR hækkar alls upp í 300 þúsund á mánuði á þremur árum eins og lágmarkslaun hefur lífeyrir aldraðra hjá TR hækkað verulega. Ríkisstjórnin ætti að taka rögg á sig og stíga þessi skref.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×