Skoðun

Stjórnvöld hafa brugðist öldruðum

Björgvin Guðmundsson skrifar
Alþingi kom saman 8. september. Nokkru áður skrifaði ég grein í Fréttablaðið, þar sem ég skoraði á Alþingi að taka kjaramál aldraðra fyrir strax á fyrstu dögum þingsins og samþykkja að láta aldraða fá jafnmikla hækkun á lífeyri sínum frá TR og þeir lægst launuðu höfðu fengið á launum sinum frá 1. maí. Lífeyrir ætti síðan að hækka í 300 þúsund krónur á þremur árum eins og launin. Ég skrifaði forseta þingsins bréf og fór fram á það sama.

Í áskorun minni á Alþingi sagði m.a.: Ég skora á Alþingi að hækka strax lífeyri aldraðra og öryrkja jafnmikið og lágmarkslaun hækkuðu 1. maí sl. eða um 31 þúsund krónur á mánuði. Hækkunin gildi frá 1. maí þannig að lífeyrisþegar fái fimm mánaða hækkun með septemberhækkun. Alþingi samþykki þessa hækkun strax og það kemur saman 8. september.

Ekkert gerðist. Enda þótt fyrir lægi, að hópur eldri borgara gæti ekki framfleytt sér á hinum lága lífeyri, sem TR skammtar honum, varð engin þverpólitísk sátt um aðgerðir. Og enda þótt vitað væri, að þeir,sem verst eru staddir meðal eldri borgara, ættu ekki fyrir mat síðustu daga mánaðarins, varð ekkert samkomulag um ráðstafanir fyrir eldri borgara.

Forseti þingsins, Einar K. Guðfinnsson, hafði það eins og ráðherrarnir, þegar þeir fá bréf frá eldri borgurum. Hann stakk bréfinu ofan í skúffu! Hvað vilja eldri borgarar upp á dekk? Halda þeir, að Alþingi sé fyrir almenning?

En örlítið ljós leyndist í myrkrinu: Samfylkingin flutti frumvarp til laga um að lífeyrir aldraðra hækkaði í 300 þúsund krónur á mánuði á þremur árum eins og launin og að hækkun lífeyris gilti frá 1. maí. Ekki blæs þó byrlega fyrir frumvarpinu: Fjármálaráðherra hefur gefið tóninn og sagt, að lífeyrir eigi ekki að vera eins hár og lágmarkslaun! Vonandi tekur Alþingi samt sjálfstæða ákvörðun og samþykkir sanngjarna og réttláta kröfu eldri borgara: 14,5%hækkun lífeyris frá 1. maí 2015 og hækkun í 300 þúsund á mánuði á þremur árum. Þetta er lágmark. Ríkisstjórnin hefur ekki viljað samþykkja kjarakröfur eldri borgara. En samþykkir þingið samt frumvarp Samfylkingarinnar?




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×