Skoðun

Lambið og hænan

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar
Við lestur á grein Tryggva Gíslasonar í Fréttablaðinu í gær varð mér ljóst hvað fyrir manninum vakir með orðræðu sinni við mig. Hann er að reyna að koma því inn hjá lesendum að ég hafi fordóma gagnvart konum og vilji ekki að þær veljist til dómarastarfa. Ekkert er fjær sanni. Satt að segja sýnist mér að ég hljóti að teljast meiri jafnréttissinni en Tryggvi. Ég vil nefnilega að allir njóti sama réttar til að hljóta dómaraembætti, kynferði skipti þar engu máli, aðeins hæfni til að leysa hin erfiðu störf af hendi. Í grein sem ég skrifaði nýlega sagðist ég vera fullkomlega sáttur við að níu konur skipuðu dómarasætin í Hæstarétti ef þær væru hæfustu lögfræðingarnir sem völ væri á.

Stjórnarskráin kveður á um að svona skuli þetta vera, því þar segir meðal annars að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna. Mannréttindin sem þarna er kveðið á um eru fyrir einstaklinga en ekki hópa. Þannig bannar þessi regla það úrræði að velja umsækjanda af öðru kyninu á þeirri forsendu að færri kynbræður eða -systur séu fyrir í starfstéttinni sem um ræðir. Sé það gert er einmitt verið að láta einstaklinga njóta misjafns réttar vegna kynferðis.

Gera lítið úr sjálfum sér

Í raun og veru eru þeir sem krefjast starfs á grundvelli kynferðis síns en ekki hæfni að gera lítið úr sjálfum sér. Þeir sem slíkar kröfur gera virðast telja sig eftirbáta annarra umsækjenda að hæfni. Að öðrum kosti þyrftu þeir ekki að hafa svona kröfu uppi. Ég get með sanni sagt að konur sem sækjast eftir dómaraembættum þurfa ekki að fara fram undir slíkum formerkjum. Ég tel mig hafa komið auga á margar konur sem ég tel standa framar að lögfræðilegri hæfni en lögfræðingar af karlkyni sem nú sitja í dómarastöðum í Hæstarétti.

Tryggvi Gíslason talar til mín af yfirlæti í skjóli þess að hafa einu sinni kennt mér eitthvað sem ég man ekki einu sinni lengur hvað var. Núna finnst mér hann þurfa á fræðslu að halda, einkum um hvað felist í raunverulegu jafnrétti milli einstaklinga. Þetta vil ég án alls yfirlætis reyna að kenna honum, þó að kannski megi þá segja að lambið sé farið að kenna hænunni – eða þannig. Og satt að segja er ég frekar vonlítill um árangur af kennslunni. Hænan mun áreiðanlega bara stinga hausnum undir væng.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×