Skoðun

Margir styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja

Björgvin Guðmundsson skrifar
Viðbrögð við grein minni í Fréttablaðinu um áskorun á Alþingi voru gífurlega mikil. Mjög margir hringdu og lýstu yfir stuðningi við, að Alþingi samþykkti að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja strax til samræmis við hækkun lágmarkslauna. Menn telja þetta sanngjarna kröfu. Menn álíta það eðlilegt og sjálfsagt, að lífeyrir hækki strax jafnmikið og lægstu laun og, að það verði afturvirkt frá 1. maí sl. Það er óskiljanlegt, að ríkisstjórnin skuli hafa ætlað að hafa af lífeyrisþegum hækkun í átta mánuði. Kjör lífeyrisþega eru það slæm, að það má engan tíma missa fyrir lagfæringu þeirra. Lagfæringin verður að gerast strax.

Mikill stuðningur við aldraða og öryrkja

Það fer ekki á milli mála, að almenningur stendur með öldruðum og öryrkjum og vill að lífeyrir þeirra verði hækkaður strax. En hvernig er með stjórnmálamennina? Vilja þeir styðja lífeyrisþega? Þeir geta svarað því, þegar Alþingi kemur saman nú í september. Þá geta þeir samþykkt í einu hljóði að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja nákvæmlega jafnmikið og lágmarkslaun hækkuðu. Þeir geta skapað réttlæti og bundið endi á það ranglæti, að ákveðnum hópi eldri borgara og öryrkja sé svo naumt skammtaður lífeyrir, að hann dugi ekki fyrir brýnustu útgjöldum. Þegar Alþingi leiðréttir þetta mun afstaða almennings til Alþingis breytast í einu vetfangi og verða jákvæð. Hvað er mikilvægara fyrir Alþingi að gera en að skapa réttlæti?

Stenst Alþingi prófið?

Það er kominn tími til að Alþingi breyti um vinnubrögð, hætti að karpa um ómerkilega hluti og snúi sér að alvarlegum málum, sem varða réttlæti fyrir borgarana. Sú kynslóð Íslendinga, sem nú er orðin öldruð, hefur átt stóran þátt í að skapa Ísland dagsins í dag. Þessi kynslóð hefur að verulegu leyti byggt upp Ísland. En samt býr stór hluti þessarar kynslóðar við mjög slæm kjör. Hvað er mikilvægara fyrir Alþingi en að bæta hér úr og laga ríkulega kjör þessarar kynslóðar?

40 þúsund eldri borgarar

Eldri borgarar (65 ára og eldri) eru 40 þúsund í dag. Öryrkjar eru um 17 þúsund. Aldraðir verða 45 þúsund árið 2020. Þessi stóri hópur aldraðra og öryrkja mun fylgjast grannt með störfum Alþingis, nú þegar það kemur saman á ný. Í augum eldri borgara og öryrkja er Alþingi að gangast undir próf. Allur þessi mikli fjöldi aldraðra og öryrkja spyr: Mun Alþingi standast prófið og leiðrétta kjör lífeyrisþega eða fellur Alþingi á prófinu? Málið er í höndum Alþingis. Valdið er í höndum Alþingis. Vonandi stenst Alþingi prófið.

Samfylkingin styður kjarakröfurnar

Þau ánægjulegu tíðindi hafa borist, að Samfylkingin flytji tillögu á Alþingi strax í upphafi þingsins um, að lífeyrir aldraðra hækki í 300 þúsund krónur á mánuði eins og lágmarkslaun. Vonandi fylgja hinir flokkarnir á eftir svo málið fái meirihluta í þinginu. Þetta eru virkilegar gleðifréttir og leiða í ljós, að kjarabarátta eldri borgara er að byrja að bera árangur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×