Skoðun

Forréttindaníska

Hildur Björnsdóttir skrifar
„Mamma, sjáðu“. Fimm ára og fordekraður leiddi hann mig að myndinni. Hefðbundnar áhyggjur hurfu um stund. Eitt augnablik hvarf hugur hans frá spjaldtölvum og rjómaís. „Af hverju eru börnin svona?“ Myndin sýndi þjökuð sýrlensk flóttabörn. Vannærð og vesæl. Vanmáttug reyndi ég að skýra það sem ég skil ekki sjálf. „En mamma, af hverju hjálpum við þeim ekki?“

Heimsbyggðin stendur frammi fyrir umfangsmiklum flóttamannavanda. Þeim stærsta frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Saklaust fólk flýr hörmungar og þúsundir drukkna á flóttanum. Siðmenntaðar þjóðir snúa baki við vandanum - finnst hann óþægilegur - vírgirðingar og vígamenn loka landamærum. Stjórnvöld ílengjast í skrifræði og diplómasíu. Biðin kostar mannslíf.

Köldustu hjörtun sjá ekki lengra en nef sér. Svo sýkt af forréttindanísku að blæðir úr nösunum. Bera fyrir sig þjónustustig og stöðu annarra Íslendinga - bera fyrir sig íslensk skólabörn með notuð ritföng. Telja rétt að loka augum gagnvart þeim fólksfjölda sem flýr stríðsátök í heimalandinu. Þeim börnum sem lifa við hungursneyð fjarri foreldrum sínum. Þeim örvæntingarfullu sem lúta í lægra haldi fyrir Miðjarðarhafinu. Þykir rétt að fórna mannslífum - því ekki má fjölga börnum með notaðan blýant.

Íslendingar eiga sumir um sárt að binda. Þeim reyna margir að hjálpa. Stöðu þeirra verður þó varla jafnað við stöðu flóttafólks. Lífi þeirra var ekki umbylt í stríði. Börn þeirra hvíla ekki undir þungri sæng hafsins.

Íslensk móðir getur ekki haldið barni sínu fermingarveislu. Sýrlensk móðir getur ekki haldið barni sínu á floti í Miðjarðarhafi. Íslensk stúlka á ekki snjallsíma. Sýrlensk stúlka er fórnarlamb mansals. Íslenskur faðir getur ekki boðið fjölskyldu sinni á sólarströnd. Sýrlenskur faðir sér lífvana líkama sona sinna - hreyfingarlausa á sólarströnd.

Gæðum er misskipt í heiminum. Úthlutunin handahófskennd landfræðileg heppni. Á mælikvarða misskiptingar erum við feitur bakaradrengur með glassúr út að eyrum. Svo blindfull af forréttindum að vellur úr munnvikunum. Hnallþóra í hverjum skáp og rjómabolla í vasanum. Við fótskör okkar öreigar sem sárbæna um mylsnu.

Hinir kornungu Aylan og Galip Kurdi komu frá bænum Kobane í Sýrlandi. Fjölskylda þeirra flúði stríðsátök í heimalandinu og hugði á betra líf í Kanada. Hælisbeiðni þeirra var hafnað. Í ólgusjó hvolfdi bát þeirra undan ströndum Tyrklands. Faðirinn reyndi að bjarga fjölskyldunni en vonin var engin. Hafið sigraði þau hvert af öðru. Myndir af líki hins þriggja ára Aylan Kurdi, mara í hálfu kafi við sólarströnd, skilja engan eftir ósnortinn. Ferðalok hans eru víti til varnaðar.

Þúsundir Íslendinga hafa opnað arma sína. Vilji landsmanna til aðgerða er skýr. Við skynjum misskiptinguna. Við sjáum hörmungarnar. Við skiljum neyðina. Stjórnvöld verða að bregðast við. Biðin kostar mannslíf.

Opnið landamærin. Leyfið okkur að hjálpa.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×