Matur

Steiktur saltfiskhnakki með lauksultu, tómat-vinaigrette og sinnepskartöflumús

Rikka skrifar
visir/ernir/rikka

Ljúffengur steiktur saltfiskhnakki frá meistarakokknum Eyþóri Rúnarssyni. Þessi uppskrift lyftir einföldum saltfiski upp í nýjar hæðir.

Steiktur saltfiskhnakki með lauksultu, tómat-vinaigrette og sinnepskartöflumús

Saltfiskurinn

800 gr saltfiskhnakkar

Hveiti

Ólífuolía til steikingar 

Skerið saltfiskinn í ca. 200 gr steikur. Þerrið fiskinn með pappír og veltið honum svo upp úr hveitinu. Hellið ólífuolíunni á steikarpönnu svo að hún fljóti upp að hálfri saltfisksteikinni. Hitið olíuna og steikið fiskinn í ca. 3 mín á hvorri hlið eða þar til saltfiskurinn er orðinn gullin brúnn.

Sinnepskartöflumús

4 stk bökunarkartöflur (fullbakaðar)


2 msk grófkornasinnep

½ liter rjómi

Sjávarsalt

Setjið kartöflurnar í pott með rjómanum og sjóðið saman í ca. 7 mín. Bætið sinnepinu út í og smakkið til með saltinu.

Lauksulta

4 stk hvítir laukar


Olía

1 msk fínt skorin steinselja

Sherryedik  

Sjávarsalt

Svartur pipar úr kvörn

Skrælið og skerið laukinn fínt niður. Hellið olíu í pott, setjið laukinn í pottinn og eldið við lágan  hita í ca. 1 klst eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur í gegn. Smakkið laukinn til með sherry edikinu og saltinu og piparnum.

Tómat-vinaigretta

150 ml ólífuolía


4 stk plómutómatar

1 stk laukur

2 hvítlauksgeirar

2 msk fínt skorinn graslaukur

1 msk dijonsinnep

1 msk sherry edik

1 tsk sykur

½ tsk fennel fræ (ristuð og brotin í morteli)

Sjávarsalt

Svartur pipar úr kvörn

Skerið tómatana í fernt og setjið ca. 1 msk af olífuolíu út á pönnuna og steikið tómatana í 2 mín á hvorri hlið. Bætið restinni af olíunni út á pönnuna ásamt, lauknum og hvítlauknum og eldið í ca. 5 mín í viðbót. Hellið öllu af pönnunni í skál og blandið svo restinni af hráefnunum vel saman við og smakkið til með saltinu og piparnum.


Tengdar fréttir

Laxatartar með estragonsósu

Eyþór Rúnarsson, meistarakokkur, töfrar hérna fram frábæran laxatartar sem tilvalin er í jólaboðið.

Svona gerirðu graflax

Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er með uppskrift af hinum fullkomna grafna laxi með graflaxsósu sem svíkur engan.

Vanillukrem og marengs með jarðarberjum og bláberjum

Ómótstæðilegur eftirréttur úr smiðju Eyþórs Rúnarssonar úr þættinum Eldhúsið hans Eyþórs á Stöð 2. Í síðasta þætti voru egg í aðalhlutverki og því ekki úr vegi að baka marens.

Shakshouka - afrískur eggjaréttur

Í síðasta þætti Eldhússins hans Eyþórs voru egg í aðalhlutverki. Hérna kemur uppskrift af frábærum afrískum eggjarétti.

Ómótstæðilegt kartöflusalat

Meistarakokkurinn Eyþór Rúnarsson fór á kostum í sjónvarpsþættinum Eldhúsið hans Eyþórs á Stöð 2 í gærkvöldi. Hann reiðir fram hvern grinilegan réttinn á eftir öðrum. Hérna er hann með ómótstæðilegt kartöflusalat sem hægt er að bera fram allan ársins hring.

Ólífukökur úr Eldhúsinu hans Eyþórs

Í síðasta þætti Elhússins hans Eyþór var aðaláherslan lögð á ólífur. Í þessu smákökum er bæði að finna ólífuolíu sem og ólífurnar sjálfar. Þær eru mjög skemmtilegar og alveg tilvaldar með ísköldu freyðivíni.

Sveppahjúpað hátíðarhreindýr

Hreindýr er hátíðlegur matur. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er hér með frábæra uppskrift af hreindýralund sem hjúpuð er sveppum, kremaðri sveppasósu og graskers-,peru- og gráðaostasalati

Ómótstæðileg epla- og brómberjabaka

Eftirréttirnir eru rúsínan í pylsuendanum á jólaborðinu. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur töfraði fram þessa ómótstæðilegu epla- og brómberjaböku sem allir geta leikið eftir

Sætkartöflusæla með pistasíum og trönuberjum

Kartöflur eru eitt vinsælasta hráefnið á Íslandi og hægt að nota á marga vegu. Hérna er meistarakokkurinn Eyþór Rúnarsson búinn að búa til uppskrift af sætkartöfluköku sem svíkur engan.

Jólaöndin hans Eyþórs

Eyþór Rúnarsson, matreiðslumeistari og þáttastjórnandi Eldhússins hans Eyþórs á Stöð 2 bjó til ómótstæðilega heilsteikta önd með sveppa og trönuberjafyllingu ásamt ljúffengri sósu og kartöflum í hátíðarbúning.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.