Skoðun

Innrásin í þig

Hallgrímur Helgason skrifar
Stundum getur einn maður breytt heiminum, hafi hann hugrekkið til þess. Ætli við getum ekki kallað Edward Snowden slíkan mann. Nú er liðið rúmt ár frá því hann gekk úr starfi sínu fyrir Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA), flúði land og færði heimsbyggðinni fréttir sem voru svo slæmar og svo stórar að við erum enn að melta þær.

Skúrkur eða hetja? spyrja landar hans enn. Eftir því sem tíminn líður hallast sífellt fleiri að því síðarnefnda. Sjálfur ber Snowden sér ekki á brjóst en þessi smávaxni, grannholda maður virðist þó búa yfir miklum innri styrk. „Þótt ég myndi enda í Guantánamo hefði ég ekki gert neitt öðruvísi.“

Slíkir menn eru dýrmætir í heimi sem ferðast sífellt hraðar frá þeirri samtíð sem við teljum okkur skilja. Án þeirra væri okkur alls ókunnugt um framferði myrkrahöfðingjanna sem líkt og í amerískri formúlukvikmynd sitja í kjarnorkubyrgjum sínum útí eyðimörkinni og sanka að sér lífum okkar allra, sjúga úr okkur staðreyndir, símtöl og ljósmyndir, sem við héldum í sakleysi okkar að við ættum ein, í mesta lagi fésbókarvinirnir líka. (Sjálfsagt mun orðið „Snowden“ tryggja tölvupósti til Fréttablaðsins, með þessari grein í viðhengi, eilíft líf í gagnaveri vestur í Utah.)

Tæknin er hérinn en þekkingin er skjaldbakan, það þekkjum við Íslendingar. Okkar sérstaka skjaldbaka silast enn um slóðir hérans fyrir hrun. Og á meðan tæknin fær að athafna sig utan við upplýsta umræðu, í rökkrinu sem ríkir handan við núið og internetið, mun hún alltaf ganga lengra en löglegt er. Það er víst í eðli mannsins, spennandi nýjungar gera hann óprúttinn. En ekki þarf nema einn mann til að kveikja ljósið og þá blasa myrkraverkin við. Og heimurinn rankar við sér: Innrásin í Írak gat af sér aðra: Innrásina í þig.

Því miður hefur umræðan um Snowden farið fram hjá mörgum hérlendis sem annarstaðar. Af því tilefni er efnt til upplestra víða um heim í kvöld, 8. september. Í alþjóðlegu átaki kemur fólk saman og les upp orð hans, allt frá Lillehammer til Cape Town, frá Nýja-Sjálandi til Kólumbíu. Framlag okkar verður á Loft Hostel.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×