Matur

Uppskrift: Kókosbolludraumur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kakan er afar einföld.
Kakan er afar einföld. Mynd/Dröfn Vilhjálmsdóttir

Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur og geislafræðingur, heldur úti uppskriftarblogginu eldhussogur.com. Þar kennir ýmissa grasa og býður Dröfn meðal annars upp á uppskrift að ómótstæðilegri köku sem hún kallar kókosbolludraum.

„Um daginn gerði ég þessa eftirréttabombu sem er svo ákaflega fljótlegt og auðvelt að útbúa og er ómótstæðilega góð!“ segir Dröfn og deilir uppskriftinni með lesendum Vísis.

Kókosbolludraumur

Uppskrift fyrir 6

1 box kókosbollur (4 kókosbollur)

1 poki lakkrískurl hjúpað súkkulaði (150 g)

1 marengsbotn

½ lítri rjómi

1 box jarðarber

1 box bláber eða önnur ber ef maður vill (til dæmis hindber, rifsber, blæjuber eða vínber)

100 g suðusúkkulaði (má sleppa)

Kókosbollurnar eru skornar í þrennt og raðað í botninn á eldföstu móti. Því næst er rjóminn þeyttur. Marengsbotninn er mulinn og blandað út í rjómann auk lakkrískurlsins. Þá er rjómanum dreift yfir kókosbollurnar. Að lokum eru berin sett yfir rjómann. Gott er að bræða suðusúkkulaði og dreifa yfir berin skömmu áður en rétturinn er borinn fram.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.