Skoðun

Nor­rænt popp á netinu

Eygló Harðardóttir skrifar

Flestir hafa gaman af tónlist og eiga sér uppáhaldslag. Bráðlega munu allir eiga þess kost að skemmta sér við að hlusta á norræna tónlist á einfaldan og aðgengilegan hátt á netinu. Hví segi ég þetta? Jú, núna um áramótin tókum við Íslendingar við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni til eins árs. Sú nýbreytni er viðhöfð í norrænu fjárlögunum að settur hefur verið á laggirnar myndarlegur sjóður sem ráðstafað er að frumkvæði formennskulandsins.



Fyrsta verkefnið sem lítur dagsins ljós vegna frumkvæðis Íslands er Norræni spilunarlistinn. Listinn verður kynntur 6. janúar þegar slóð hans fer á veraldarvefinn. Um er að ræða menningarverkefni þar sem skapandi greinum er gert hátt undir höfði.



Samstarf við tónlistarveitur

Norræni spilunarlistinn hefur verið í mótun undanfarið ár, en það er útflutningsmiðstöð norrænnar tónlistar, NOMEX eða Nordic Music Export, sem stýrir verkefninu og sér um framkvæmd þess. Að baki NOMEX eru útflutningsmiðstöðvar tónlistar á Norðurlöndum og er Útón fulltrúi Íslands.



Markmiðið með verkefninu er að nýta nútíma tækni í fjölmiðlun; samfélagsmiðla og netmiðla til þess að koma norrænni tónlist á framfæri innan og utan Norðurlandanna og auka þar með útflutningsmöguleika hennar á Norðurlöndunum og alþjóðlega.



Undirbúningur verkefnisins hefur gengið vel – búið er að hanna vefsíðu þar sem það besta og efnilegasta í norrænni popptónlist verður aðgengilegt á einum stað – samstarf er hafið við stórar tónlistarveitur á borð við spotify, wimp og deezer og viðræður eru í gangi við bandarískar veitur. Verkefnið mun stuðla að betri og markvissari kynningu á norrænni tónlist.



Tónlistarmenningin dafnar

Við höfum tröllatrú á þessu verkefni. Það er vel kynnt á Norðurlöndum, nýtur mikils velvilja, er til þess fallið að höfða til ungra Norðurlandabúa og ætti að efla tiltrú þeirra á norrænt samstarf. Árið 2014 verður varið rúmum 40 milljónum króna til Norræna spilunarlistans, en markmiðið er að sjálfsögðu að hann verði sjálfbær þegar norrænum stuðningi við hann lýkur að þremur árum loknum. Það er von mín að spilunarlistinn fái fljúgandi start og að norræn tónlist verði aðgengileg sem flestum á veraldarvefjunum. Þannig mun tónlistarmenning okkar dafna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×