Matur

Rolo-smákökur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Rolo-smákökur

 
115 g mjúkt smjör

280 g púðursykur

2 egg

55 g kakó

1/2 tsk lyftiduft

1/4 tsk salt

260 g hveiti

Nóg af Rolo



Hrærið hveiti, lyftiduft, salt og kakó saman og setjið skálina til hliðar. Blandið sykur og púðursykur saman í annarri skál. Hrærið eggjunum saman við, eitt í einu og blandið því næst þurrefnunum saman við smátt og smátt. Setjið deigið í ísskáp í tvo klukkutíma. Hitið ofninn í 175°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur. Gerið kúlur úr deiginu, setjið þær á ofnplöturnar og fletjið með lófanum. Setjið eitt Rolo í miðjuna og klípið í enda deigsins til að hylja nammið. Bakið í fimmtán til tuttugu mínútur.

Fengið hér.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.