Matur

Morgunverðarmúffur með beikoni - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Morgunverðarmúffur með beikoni

Múffur

Hráefni:



3/4 bolli mjúkt smjör

1 1/2 bolli sykur

3 stór egg

1 msk vanilludropar

1 1/4 bolli grísk jógúrt

2 1/2 bolli hveiti

4 msk maizena

1 tsk kanill

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk matarsódi

1/2 salt

Rjómaostakrem

Hráefni:



225 g mjúkur rjómaostur

2 msk mjúkt smjör

2 bollar flórsykur

1/4 bolli hlynssíróp

1 tsk kanill

steiktir beikonbitar (má sleppa)



Hitið ofninn í 170°C. Hrærið smjör og sykur vel saman og bætið síðan eggjunum saman við, eitt í einu. Blandið því næst vanilludropum saman við. Blandið hveiti, maizena, kanil, lyftidufti, matarsóda og salti saman í annarri skál. Blandið hveitiblöndunni og jógúrti saman við smjörblönduna til skiptis þangað til allt er vel blandað saman. Skiptið blöndunni í tólf möffinsform og bakið í fimmtán til tuttugu mínútur. Leyfið kökunum að kólna og búið til kremið.

Blandið rjómaosti, smjöri og flórsykri vel saman. Bætið því næst sírópi og kanil við og hrærið vel saman. Skreytið kökurnar með kreminu og setjið beikonbita ofan á.

Fengið hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.