Skoðun

Íbúalýðræði í Mosfellsbæ

Jan Agnar Ingimundarson skrifar
Það er lýðræðinu stórhættulegt ef sami flokkurinn, sömu mennirnir, sitja of lengi við völd. Stjórnkerfið getur orðið sjúkt og veldissprotinn jafnvel misnotaður. Hætta er á að ráðamenn verði heimafrekir og leyfi sér yfirgang og jafnvel að hóta fólki svo það þorir ekki að fara gegn og eða gagnrýna ráðamenn, í tali eða í skrifum.

Hvernig má það vera að einn flokkur, hér í Mosfellsbæ, getur orðið svona stór og haldið völdum svona lengi? Það er ekki hægt að segja með vissu. Fullyrða má þó að sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ eiga ekki efnislega innistæðu fyrir þessu fylgi. Er kannski skýringuna að leita hjá stjórnarandstöðunni, sem veitt hefur stjórnarflokkunum veikt og ekki sjáanlegt aðhaldi í stjórnarandstöðuhlutverki sínu? Engin stjórn er sterkari en stjórnarandstaðan leyfir. Stjórnarandstaðan þarf að viðra sín mál, vera sýnileg, virk og trúverðug í sinni stjórnarandstöðu.

Mosfellslistinn er nýtt framboð, framboð einstaklinga, sem eiga og ala þá hugsjón að manneskjan er alltaf númer eitt. Hugsjónir okkar ganga út á að gera Mosfellsbæ manneskjulegri, með opnari stjórnsýslu, í góðum tengslum og samskiptum við íbúa bæjarins. Mosfellslistinn mun leita í visku íbúanna og finna sameiginlega með þeim, bestu og réttlátustu lausnirnar á sérhverju máli hverju sinni. Allir íbúar Mosfellsbæjar er í augum Mosfellslistans ein stór hópsál, fjölskylda, þar sem allir eru jafnir og sitja við sama borð. Út frá forsendum sérhverrar manneskju munum við vinna í samráði við hana, sem og við hagsmunaaðila, ef svo ber undir. Ég heitir á ykkur kæru bæjarbúar að vinna saman að öllum málum er varða manneskjuna, mannréttindi og mannhelgi hennar. Sameiginlega erum við sterk og með viljann að vopni getum við t.d. útrýmt fátækt í bænum. Munum aðeins að samtakamátturinn er okkar sterkasta afl og sameiginlega getum við flutt fjöll. Þannig mun Mosfellslistinn vinna í góðri sátt við íbúa Mosfellsbæjar.

Manneskjan getur ekki staðið ein og horft með björtum augum til framtíðar nema í sterkri sátt og í tengslum við umhverfið sitt og náttúruna. Uppbygging bæjarfélags okkar þarf að gerast í þeirri sátt. Við verðum að finna sameiginlegar lausnir á svo mörgu, eins og t.d. á samgöngumálum, bæði hvað varðar farartæki, vegi, göngu- og hjólastígum – gott aðgengi fyrir alla. Það er svo margt sem fylgir samfélagsgerðinni sem við þurfum að vinna sameiginlega að. Skipulagsmál, skólarnir okkar og skólastefnan, menning og listir, íþróttir og íþróttahús. Að hvetja alla sem byggja ný íbúðar- og eða einbýlishús að hafa í huga aðgengi fyrir fatlaða, til að geta búið ævilangt í sinni íbúð og eða í sínu einbýlishúsi.

Við verðum líka að finna leið og lausnir svo húsdýraeigendur geta notið þess að eiga sín dýr í sátt við samfélagið, umhverfi sitt og náttúru. Í sátt við fuglalífið.

x-X Mosfellslistinn trúir á samskipti við ykkur bæjarbúa, trúir á samtakamátt fólksins. Í okkur öllum býr sterkasta loforðið að vinna saman, fyrir bæjarsamfélagið okkar inn í framtíðina.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×