Matur

Helgarmaturinn - Súkkulaðikókos ostakaka

Marín Manda skrifar
Ragnhildur Þórðardóttir einkaþjálfari.
Ragnhildur Þórðardóttir einkaþjálfari.

Ragnhildur Þórðardóttir einkaþjálfari sem oftast er kölluð Ragga nagli er með uppskrift af kökunni sem allir ættu að bragða um helgina. 

Botn

80 g Now-möndlumjöl (Fjarðarkaup, Hagkaup, Lifandi markaður)

20 g kókoshnetuhveiti

12 g Fiber Sprinkle (má líka nota mulið hrökkbrauð)

1 eggjahvíta

1 dl möndlumjólk

Fylling

450 g kotasæla

250 g kvark/hreint skyr/grísk jógúrt (1%)

2 msk. Now-erythriol (Fjarðarkaup, Hagkaup, Lifandi markaður)

1 msk. Walden Farms Marshmallow Dip (má sleppa)

1 tsk. súkkulaði, sykurlaust Jello-pudding-mix

1,5 msk. Hershey‘s ósætt kakó (Kostur)

Now-kókoshnetudropar

Aðferð

1. Hræra allt gumsið sem fer í botninn saman þar til það verður að deigi og hnoða í kúlu.

2. Setja kúluna á smjörpappírsklæddan botn úr smelluformi (20-25 cm í þvermál).

3. Setja annan smjörpappír yfir kúluna og fletja út með kökukefli þar til botninn hefur fyllt út í kantana.

4. Henda lummunni í 160°C heitan ofn í um 10 mínútur meðan fyllingin er gerð.

5. Hræra fyllinguna saman með töfrasprota.

6. Hella yfir botninn sem ætti nú að vera orðinn fallega gullinbrúnn.

7. Inn í ofn í 30-35 mínútur. Kakan á að vera aðeins „wobbly“ þegar hún kemur úr sólbaðinu.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.