Skoðun

Hægara sagt en gert

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Það er hryggilegt að lesa jafn ósanngjarna stjórnmálaumfjöllun eftir jafn mætan mann og Kristin H. Gunnarsson og þá sem birtist í Fréttablaðinu í gær, 17. október. Því miður er Kristinn við kunnuglegt heygarðshorn þegar hann ræðir niðurskurð í tíð seinustu ríkisstjórnar án þess að nefna þær aðstæður sem voru uppi í samfélaginu eða þann nærri 200 milljarða fjárlagahalla sem hún hlaut í arf. Slíka ósanngjarna gagnrýni mátti ríkisstjórnin glíma við allan tímann, frá fólki sem eflaust stundar það líka að sitja við gluggann í hellirigningu og ofsaroki og furða sig á að fólk sé í regnkápum.

Til að bíta höfuðið af skömminni eignar hann „vondu vinstristjórninni“ líka niðurskurð á árunum 2007 og 2008 þegar aðrir voru við völd og aðstæður voru taldar allt aðrar og betri og niðurskurð til Landspítalans árin fyrir hrun. Enn versnar það þegar ríkisstjórninni er sérstaklega hallmælt fyrir að hafa sinnt umhverfismálum of vel og ekki skorið nógu duglega niður í menntakerfinu. Allt er þetta sett í samhengi landshlutastríðs sem Kristinn virðist æstur í að efna til.

Grátbroslegi hlutinn af greininni er þegar seinustu ríkisstjórn er hallmælt fyrir að hafa þurft tíma til að koma á veiðileyfagjaldi. Staðreyndin er þó að það er í tíð síðustu ríkisstjórnar sem sjávarútvegurinn tók í fyrsta sinn að greiða veiðigjöld svo nokkru næmi. Þau voru hækkuð í áföngum og síðan sett lög um almennt og sérstakt veiðigjald og kostaði hörð átök við stórútgerðirnar og þáverandi stjórnarandstöðu í hvert sinn. Það getur tekið tíma að koma góðum málum áleiðis og það ætti maður að vita sem sat á Alþingi í 18 ár, þar af átta ár sem hluti af ríkisstjórnarmeirihluta, án þess að ná fram einni einustu breytingu á fiskveiðistjórnunarkerfinu í þá átt sem hann auglýsir nú eftir. Ég gæti spurt í hans stíl: Hvað var maðurinn að gera öll þessi ár? Það er bara ívið léttara að skrifa grein en að koma lögum gegnum þing.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×