Matur

Helgarmaturinn - Bruschetta Duo

Marín Manda skrifar
Arnar Már Guðmundsson
Arnar Már Guðmundsson

Arnar Már Guðmundsson, yfirkokkur á Laundromat Cafe á Austurbrú í Kaupmannahöfn er hér með dýrindis bruchetta uppskrift með geitaosti og heimagerðu salsa. 

Hráefni

Geitaostur,

mozzarella,

parmesan,

2 paprikur,

tómatar í dós,

1-2 chilialdin,

1 stk. lime,

ciabatta-brauð,

rjómaostur,

hvítlaukur,

basilíkubúnt,

myntubúnt

Heimagert salsa

2 paprikur, 

1 dós tómatar, 

3 hvítlauksgeirar, 

1 tsk. mexican-krydd, 

1 tsk. reykt paprikukrydd, 

2 laukar, 

1 chllialdin, 

1 lime



Paprikurnar eru grillaðar í ofni við 200 gr. í u.þ.b. 10 mínútur þar til þær eru svartar að utan. Látið þær svo í poka og inn í frysti. Eftir 10 mínútur er pokinn tekinn út og fræin skafin úr og skinnið plokkað af þeim. 

Léttsteikið laukana í potti, hellið tómötunum yfir og bætið paprikunni út í. Kryddið til og saltið eftir þörfum og kreistið safa úr einu lime yfir. Maukið sósuna með töfrasprota.

Þetta verða allir að bragða á.

Aðferð

Ciabatta-brauð skorið í tvennt. Penslið brauðið með olíu og ristið í ofni á 180 gr. í um 5 mínútur. Á annan helminginn setið þið salsað og geitaost í skífum. Á hinn setið þið rjómaost og bætið chorizo á eftir þörfum.

Grillist í ofni í 210 gráður á yfirhita í u.þ.b. 2-5 mín. Yfir geitaostsbruschettuna er gott að setja myntulauf, þau smellpassa á móti reykta sterka bragðinu.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.