Skoðun

Netherinn í Jørstadmoen

Elín Hirst skrifar

Ég er nýkomin frá Noregi þar sem ég heimsótti herstöð sem sérhæfir sig í netöryggismálum landsins. Heimsóknin vakti mig til mikillar umhugsunar um öryggi okkar Íslendinga.



Tölvukerfi stýra öllu. Fjarskiptum, rafmagni og samgöngum þar á meðal flugumferð. Viðkvæmar upplýsingar um heilsufar og lyfjanotkun eru vistaðar í tilteknum tölvukerfum. Fjármál bæði einstaklinga og fyrirtækja eru vistuð í öðrum. Meira að segja gætu tölvuþrjótar ráðist inn í tölvukerfi sem stýrir gangráði hjartasjúklinga í því skyni að gera þeim mein



Í höfuðstöðvum netöryggismál í Jørstadmoen í Noregi skammt frá Lillehammer, standa menn vaktina fyrir Noregs hönd allan sólarhringinn, allan ársins hring. Ekki veitir af því fjöldi tilrauna er gerður á hverjum einasta degi til að brjótast inn í mikilvæg tölvukerfi í Noregi í því skyni að stela verðmætum, upplýsingum eða einfaldlega til þess að valda skaða.



Því má halda fram með góðum rökum að ef til átaka kæmi í heiminum í nánustu framtíð myndu net- og tölvuvarnir viðkomandi þjóða skipta afar miklu máli. Netöryggi er því brýnt þjóðaröryggismál, eitt það allra mikilvægasta á vorum tímum. Ljóst er að Íslendingar verða að móta sér skýra stefnu í þessum málaflokki.



Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði nýlega á fundi með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins að Ísland vildi taka þátt í þróun bandalagsins varðandi netöryggismál og að Ísland henti vel fyrir alþjóðlega björgunarmiðstöð á Norðurslóðum. Hvorutveggja er ég sammála. Við okkur blasir ný heimsmynd þegar siglingar hefjast um Norðurpólinn, þar sem lega Íslands verður afar mikilvæg ekki síst á sviði björgunarmála.



Hvað netöryggismálin snertir legg ég til að við óskum eftir samstarfi við Norðmenn á þessu sviði innan NATÓ.



Noregur og Ísland eru frændþjóðir þar sem hagsmunir fara mjög oft saman. Það hlýtur að vera afar verðmætt fyrir litla þjóð eins og okkar að geta átt hlutdeild í og aðgengi að þessu mikilvæga öryggisneti sem Norðmenn hafa byggt upp í Jørstadmoen.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×