Matur

Hollur og góður frostpinni

Marín Manda skrifar
Aðalheiður Ýr fitnesskona
Aðalheiður Ýr fitnesskona

Aðalheiður Ýr er einkaþjálfari í World Class og módelfitness keppandi mælir með heimatilbúnum frostpinna.

Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir keppti á sjö módelfitness mótum á síðasti ári og varð meðal annars Heimsmeistari í Búdapest.

Hún hugsar vel um heilsuna með mikilli hreyfingu og segir að mataræðið skipti öllu máli. „Til að ná árangri í fitness eða einfaldlega til að komast í form þá skiptir mataræði alveg 80 % máli. Mér þykir rosalega gaman að baksa með hollar uppskriftir.

Stundum útbý ég ferska frostpinna sem er svo sniðugt að eiga heima til að grípa í til að svala þörfinni, án þess að fá samviskubit.“

Aðalheiður Ýr segist vera dugleg að búa til ýmis konar boost daglega en hún mælir eindregið með Frooch drykkjunum því þeir innihalda tvo ávexti í hverri flösku og það eru engin viðbætt efni í drykkjunum.

Froosh frostpinnar

einfaldir og mjög sniðugir í partý og barnaafmæli

Froosh drykk hellt í íspinnaform og frystir (best að gera kvöldið áður en á að nota) 

Hægt er að bæta við ferskum ávöxtum til að gera þá litríkari. 

Grískt jógúrt, má einnig nota með til að lagskipta pinnanum. 

Skreyta með 74% bræddu súkkulaði og kókos.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.