Skoðun

„Þjóðinni fært þjarkið sitt“

Sighvatur Björgvinsson skrifar
Mörgum Íslendingum lætur ekki ýkja vel að rökræða. Miklu betur að þjarka. Í þjarkinu eru ekki brúkaðar röksemdir, heldur fullyrðingar. Annar segir að svart sé hvítt. Hinn að hvítt sé svart. Því lengur sem þjarkað er þeim mun groddalegri verða fullyrðingarnar. Hámarkinu er svo náð með stóryrðum og kjaftbrúki (sjá bloggheima). Kjaftbrúkurum er gjarna svo mikið niðri fyrir, að þeir geta varla skrifað eina setningu óbrjálaða á íslensku máli. En dugnaðinn vantar ekki. Sletturnar ganga í allar áttir!

Frá þjarkinu á undanförnum áratugum er margs að minnast. Um Hafnarfjörð „sem verður óbyggilegur sakir barnadauða af völdum mengunar ef álver rís í Straumsvík“. Um Alþingi, sem „hætt verður að kjósa til ef Ísland gengur í EFTA því þá verður þjóðinni stjórnað frá útlöndum“. Um „hvernig landið muni fyllast af Portúgölum og Spánverjum sem setjast munu upp á kerfið ef Ísland gengur í EES“. Ég nýt þess mjög mikið að hitta slíka viðmælendur og rifja upp ummælin. Þá þurfa þeir allt í einu að flýta sér afskaplega á áríðandi stefnumót annars staðar. Hafa ekki tíma til að ræða málin. Íslendingurinn viðurkennir aldrei að hafa haft rangt fyrir sér. Þá þarf hann endilega að fara eitthvert annað.

Versti óvinurinn

Versti óvinur þeirra sem unna þjarkinu er ef veruleikinn er látinn mæta á staðinn. Þá er ekki lengur hægt að þjarka. Veruleikinn fellir nefnilega dóminn. Hann gerði það í Straumsvík. Hann gerði það um EFTA. Hann gerði það um EES.

Í síðustu tuttugu ár hafa þjarkarar þjarkað um ESB. Skipst á fullyrðingum, sem stöðugt verða groddalegri. Viðhaft stóryrðin – „þjóðníðingar og landráðamenn“ – og kjaftbrúk. Orðið svo heitt í hamsi að megna ekki að koma frá sér á blogginu heilli setningu á óbrjálaðri íslensku. Sem sé: Náð toppnum.

Svo stóð til að láta veruleikann mæta á staðinn. Það ákvað Alþingi. Láta veruleikann skera úr um, hvort ESB-aðild myndi neyða æsku landsins inn í evrópskan her (sem raunar er ekki til) og annað álíka. En það nær auðvitað engri átt. Þá gæti þjóðin tapað þjarkinu sínu. Misst af því að geta haldið áfram að þjarka í a.m.k. önnur tuttugu ár til viðbótar. Góðir menn sjá að það má ekki gerast. Það má ekki hafa þjarkið af þjóðinni!

Mikið er það nú ánægjulegt að flokkar hafa tekið ákvörðun um að leyfa þjóðinni að halda áfram að þjarka um ESB. Koma í veg fyrir að veruleikinn sé kvaddur á vettvang. Mikið held ég að mörgum sé létt. Loksins þjóð með trygga framtíð. Meira að segja bannað að miðla upplýsingum um ESB. Loka skal Evrópustofu. Skella barasta í lás. Reka fólkið heim. Þjóðinni verður fært þjarkið sitt aftur. Hvílík unun! Hvílíkt öryggi! Hvílík framtíðarsýn!

Forystuflokkurinn, sem kennir sig við þjóðarsjálfstæðið, hefur talað.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×