Skoðun

Margt óunnið enn

Elín Björg Jónsdóttir og formaður BSRB skrifa
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er haldinn hátíðlegur í dag. Uppruna dagsins er að rekja til ársins 1910 er fjölmargar konur frá ólíkum löndum söfnuðust saman og ákváðu að haldinn skyldi árlega alþjóðlegur baráttudagur kvenna.

Fyrstu árin voru baráttumálefnin kosningaréttur kvenna og samstaða verkakvenna. Þótt margt hafi áunnist í baráttunni fyrir jöfnum rétti frá því baráttudagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur er enn fyllsta ástæða fyrir áframhaldandi baráttu kvenna. Baráttu kvenna fyrir auknu jafnrétti, á vinnumarkaði, innan menntastofnana sem og á heimilunum. Því er mikilvægt að halda heiðri þessa dags áfram á lofti, sýna samstöðu um vilja til breytinga og leggja okkar af mörkum til að breyta hugsunarhætti til að stuðla að frekari jöfnuði í framtíðinni.

Í tilefni dagsins verður í dag sem fyrri ár haldinn hádegisverðarfundur á Grand Hóteli en í ár verður áhersla lögð á vakningu umræðu um kynskiptan vinnumarkað. Yfirskrift fundarins er: Kynhlutverk og kynskiptur vinnumarkaður – ný kynslóð, nýjar hugmyndir? Á Íslandi búum við enn við nokkuð kynskiptan vinnumarkað sem birtist skýrt í hugmyndum fólks um „hefðbundin kvennastörf“ og „hefðbundin karlastörf“.

Mikilvægt er komast að því hvað veldur þeirri kynjaskiptingu sem virðist vera innbyggð í íslenskan vinnumarkað. BSRB hefur margsinnis lýst þeim vilja sínum að farið verði ofan í kjölinn á því hvað veldur svo mikilli kynskiptingu á vinnumarkaði sem raunin er. Bandalagið hefur lýst þeirri skoðun sinni að hið opinbera verði að koma að því verkefni, enda þarf að greina á hverju starfsval ungs fólks byggir. Öðruvísi erum við ófær um að brjóta upp núverandi mynstur og auka fjölbreytni. Viðfangsefni okkar hlýtur að vera að búa þannig í haginn að komandi kynslóðir líti ekki á ákveðin störf sem annaðhvort störf fyrir karla eða konur.

Um leið og ég óska öllum til hamingju með daginn hvet ég alla til að kynna sér þá viðburði sem fram fara í tilefni Alþjóðlegs baráttudags kvenna og taka þátt. Samstaða okkar allra er það eina sem getur breytt hugmyndum okkar um kynhlutverk á vinnumarkaði, stuðlað að frekara jafnrétti og gefið komandi kynslóðum meira val og meiri fjölbreytni, samfélaginu öllu til góða.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×