Skoðun

Góð næring í stað stærri köku

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Eins og ég benti á um daginn leiðir taumlaust sykurát, stóra kaka Sjálfstæðisflokksins, ekki af sér varanleg lífsgæði heldur þvert á móti eru allar líkur á að afleiðingarnar verði offita, næringarskortur, uppþemba, höfuðverkir og fleiri kvillar, smáir og stórir. Á móti því ætlum við vinstrigræn ekki að tefla enn þá stærri köku heldur annars konar sýn, annars konar atvinnustefnu.

Af tali fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um atvinnumál að dæma er engu líkara en „ekki“ hafi horfið úr gömlu spakmæli um að setja ekki öll eggin í eina körfu áður en það barst til eyrna þeirra. Setjum öll eggin í eina körfu, segja þeir. Og karfan er aðeins fyrir þá kynslóð sem nú lifir. Íslenska vatnsorkan er ekki fyrir komandi kynslóðir, aðeins fyrir okkur sem nú lifum til að kakan sé nógu stór. Í verki hefur atvinnustefna Sjálfstæðisflokksins snúist um bólur og arðrán á náttúrunni. Íslenska orkan hefur verið seld ódýrt til stóriðju og útvaldir útgerðarmenn hafa fengið að fiska án þess að greiða þjóðinni eðlilegt endurgjald.

Á þessu kjörtímabili hefur ríkisstjórnin lagt áherslu á annað. Hún hefur lagt áherslu á sjálfbæra og arðbæra nýtingu auðlinda í þágu allra. Hún hefur lagt áherslu á nýsköpun, á vísindi og skapandi greinar. Hún hefur viljað dreifa áhættunni og styrkja við lítil og meðalstór fyrirtæki. Hún hefur tekið skýra afstöðu gegn risavöxnu patentlausnunum sem fyrst og fremt hafa þann tilgang að láta stjórnmálamann líta vel út í augum þakklátra kjósenda. Þannig hefur verið horft til framtíðar.

Auðvitað hafa liðin ár ekki verið nein gósentíð því að íslenskt hagkerfi var sannarlega illa sett eftir seinasta sykurskammtinn. En núna eru horfurnar miklu betri. Núna eru tækifærin til að halda áfram á sömu braut, halda áfram að gefa smáskammta af vítamínum til sem flestra, í stað þess að leggja alla áherslu á eitt risaverkefni. Halda áfram að styrkja samkeppnissjóði í rannsóknum, halda áfram að efla háskólastigið, halda áfram að bæta menntakerfið, halda áfram að hjálpa atvinnulífinu að hjálpa sér sjálft. Íslenskt atvinnulíf og íslenskt samfélag eiga betra skilið.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×