Skoðun

Nýtt ráðuneyti allra atvinnugreina

Steingrímur J. Sigfússon skrifar
Á laugardaginn tók til starfa nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og með því hafa stjórnvöld og atvinnulífið eignast öflugt tæki til stefnumótunar, framþróunar og nýsköpunar. Markmiðið er skýrt og klárt – að búa eins vel og kostur er í haginn fyrir öflugt atvinnulíf.

Meðal þess sem gagnrýnt var í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var að stjórnsýslueiningarnar væru of veikburða og að styrkja þyrfti ráðuneytin. Með því að sameina iðnaðarráðuneytið, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og hluta af efnahags- og viðskiptaráðuneytinu er orðið til nýtt 70 manna ráðuneyti atvinnuvega og nýsköpunar sem hefur afl og burði til að ráða við þau mikilvægu verkefni sem við blasa.

Í skipuriti nýja ráðuneytisins er ekki að finna nöfn hinna hefðbundnu atvinnugreina sem margar hverjar hafa hingað til átt sín eigin ráðuneyti. Þeim verður eftir sem áður sinnt af kostgæfni en til þess að takast á við ný tækifæri tókum við snemma þá ákvörðun að hólfa ekki atvinnugreinarnar niður hverja í sinn bás heldur nálgast þær út frá almennum starfsskilyrðum.

Þetta er að mínu viti holl og tímabær uppstokkun því að atvinnugreinar þróast með tímanum. Hvern hefði til dæmis órað fyrir því fyrir 25 árum að árið 2012 yrði ferðaþjónustan ein af þeim þremur atvinnugreinum sem skapa okkur Íslendingum mestar gjaldeyristekjur? Hvað þá að uppgangur hinna svokölluðu skapandi greina yrði í líkingu við það sem raunin er. Það er ekki að ástæðulausu að síðara orðið í nafni hins nýja ráðuneytis sé nýsköpun.

Stofnun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis ásamt stofnun fjármála- og efnahagsráðuneytis og umhverfis- og auðlindaráðuneytis er lokahnykkurinn á viðamikilli endurskipulagningu stjórnarráðsins sem mælt var fyrir um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ráðuneytum hefur fækkað úr tólf í átta og fyrir vikið stöndum við nú með skilvirkari og öflugri stjórnsýslu.

Ég hlakka til að vinna að því að efla íslenskt atvinnulíf ásamt samstarfsfólki mínu í nýju ráðuneyti og í skapandi samvinnu við hagsmunaaðila. Tækifærin eru svo sannarlega til staðar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×