Skoðun

AAA – með a.m.k. tíu plúsum

Sighvatur Björgvinsson skrifar
Íslenska grunnskólakerfið er sagt vera eitt hið dýrasta í heimi. Það sjöunda dýrasta ef ég man rétt. Samt segja upplýsingar frá OECD að árangurinn sé ekki í samræmi við útgjöldin. Sama segja þær samanburðarrannsóknir, sem gerðar hafa verið á þekkingu grunnskólanema með aðild Íslendinga. Sérhver grunnskólanemandi mun kosta skattborgara þrettán milljónir króna. Samt kann fjórði hver drengur og tíunda hver stúlka ekki að lesa sér til gagns þegar útskrift fer fram eftir tíu ára nám.

Framhaldsskólar landsins hafa í auknum mæli reynt að bregðast við slökum árangri grunnskólakerfisins með því að láta þá grunnskólanemendur, sem sækja um inntöku í skólana, gangast undir inntökupróf. Framhaldskólarnir telja sig sem sé ekki geta treyst grunnskólakerfinu betur en þetta. Nú lesum við í blöðum, að menntamálayfirvöld ætli sér að bregðast við þessu vandamáli. Hvernig? Með því að skoða hvað það sé, sem miður fer í grunnskólakerfinu? Nei – ekki aldeilis. Heldur með því að breyta einkunnagjöf nemenda við burtfararpróf. Hætta að gefa unglingunum einkunnir í tölustöfum – frá 1 og upp í 10 – en fara þess í stað að gefa þeim einkunnir í bókstöfum – frá A til D. Slík „einkunnagjöf" minnir einna helst á einkunnagjöf hinna alþjóðlegu matsfyrirtækja. Þau nota nefnilega bókstafi en ekki tölustafi við einkunnagjöf og gáfu – ef mig minnir rétt – íslensku útrásarbönkunum þrefalt A rétt í þann mund, sem þeir voru að falla.

Nú þurfum við ekki að fara nema svo sem þrjá áratugi aftur í tímann. Þá komust menntamálayfirvöld nefnilega að því, að ekki mætti flokka nemendur í grunnskólum eftir getu í A, B, C og D bekki. Bönnuðu það stranglega. Sögðu m.a. sem svo, að skólakerfið mætti ekki gera svo upp á milli fólks, að sumt fólk væri látið vera A-fólk, annað B-fólk, það þriðja C- fólk og það allra sísta D-fólk. Ljótara athæfi fannst þá ekki í íslenskum skólum.

En nú á lausn grunnskólavandans sem sé að vera sú, að við útskrift úr grunnskóla skuli sumir unglinganna verða A-börn, önnur B-börn, þriðju C-börn og þau fjórðu D-börn. Þannig ætla yfirvöld að leysa vandamál kerfisins. Nema hvað!?!

Ómenntuðu fólki eins og mér ásamt veðurfræðingum hefur vinsamlega verið bent á það af menntunarfræðingum að við eigum ekki að vera að tjá skoðanir á menntunarmálum. Það geri ég að sjálfsögðu ekki. Lýsi miklu þjóðarstolti með okkar menntunarfræðinga. Tel þá vera þá langbestu í heimi. Um þá segi ég bara: „You ain't seen nothing yet". Á mælikvarða matsfyrirtækjanna fá þeir örugglega einkunnina AAA – með a.m.k. tíu plúsum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×