Skoðun

Brandarinn um Boot Camp

Sóley Tómasdóttir og Torfi Hjartarson skrifar
Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárdal finnst sprenghlægileg sú hugmynd að starfsemin minni með einhverju móti á herþjálfun eða herbúðir. Heimdellingar rjúka upp til handa og fóta en taka svolítið annan pól í hæðina, þeim finnst það himinhrópandi firring, að Vinstri græn skuli fetta fingur út í svona líkamsrækt sem aðrar þjóðir og voldugri en við Íslendingar hafa notað til að efla heilsu hermanna!

Kveikjan að öllu þessu er bókun sem Vinstri græn lögðu fram á fundi í skipulagsráði Reykjavíkur. Þar var bent á nokkur atriði sem varða almannarými í Elliðaárdal þar sem einstök laxveiðiá fellur til sjávar. Dalurinn býr yfir lifandi náttúru í góðu skjóli og miklum tækifærum til útivistar. Hann býður upp á ríkulega náttúrupplifun inni á milli stórra hverfa þar sem tugþúsundir borgarbúa eiga heimili sín. Í því felast mikil verðmæti.

Í bókuninni er dregið fram óbeinum orðum að ekki hefði átt að leyfa byggingu safns á þessu svæði án þess að hugsa fyrir hagsmunum Reykvíkinga ef til þess kæmi að félag um safnið vildi selja húsið öðrum eins og nú er komið á daginn. Bent er á að borgin hefur nú samt skipulagsvald til að stýra því fyrir hönd almennings hvaða starfsemi fær að leysa safnið af hólmi. Það þarf nefnilega að breyta skipulagi til að fá húsinu nýtt hlutverk og það hlutverk ætti að vera í sátt við fólk, náttúru og sögu. Það er okkar mat að skipulagsráð eigi að leggja höfuðáherslu á að verja dalinn, en ekki stuðla að aukinni starfsemi í dalnum með tilheyrandi umferð og álagi á svæðið.

Í bókuninni er líka gefið til kynna að líkamsrækt með herbúðasniði eigi lítið erindi í dalinn og dregið fram að líkamsræktarstöð á þessum stað fylgir mikil umferð bíla og rík þörf fyrir stæði. Þetta bílakraðak er auðvitað mesta áhyggjuefnið. Engar upplýsingar liggja fyrir um væntanlega umferð tengda starfseminni og lélegar tengingar við almenningssamgöngur eru við svæðið.

Þessi gagnrýni okkar Vinstri grænna þarfnast varla frekari skýringa en til frekari skemmtunar fyrir þá sem hlógu sig hása að þeirri hugmynd að líkamsrækt undir merkjum Boot Camp minni á herbúðir má segja frá því að í ensk-íslenskri orðabók segir klippt og skorið að samsetta orðið boot camp merki æfingabúðir fyrir nýliða í flota eða landgönguliði Bandaríkjanna. Svo má líka rifja upp að fyrirtækið lagði sjálft mikla áherslu á hernaðaryfirbragðið í upphafi en á því virðist hafa orðið töluverð breyting í rétta átt. Það er auðvitað ánægjulegt og jafnvel örlítið broslegt. Aðalatriðið í öllu þessu er nú samt að við Elliðaárnar eigum við fallegan dal fullan af möguleikum og þar þurfum við öll að stíga varlega til jarðar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×