Skoðun

Forseti – samein- ingartákn eða stjórnmálamaður?

Tryggvi Gíslason skrifar
Í nýársræðu tilkynnti Ólafur Ragnar Grímsson að hann ætlaði að láta af starfi forseta Íslands, sagðist eftir að hafa íhugað vandlega ólík sjónarmið varðandi framboðið, að niðurstaðan kynni að hljóma sem þversögn „en er engu að síður sú, að aðstæður þjóðarinnar séu þess eðlis, að ég geti fremur orðið að liði, ef val á verkefnum verður eingöngu háð mínum eigin vilja, óbundið af þeim skorðum sem embætti forsetans setur jafnan orðum og athöfnum“. Síðan segir orðrétt í ræðunni:

„Þegar skyldur þjóðhöfðingjans hvíla ei lengur á mínum herðum fæ ég meira frelsi til að sinna hugsjónum og málefnum, sem hafa lengi verið mér kær, get á annan veg tekið þátt í að efla framfarir og hagsæld, vísindi, rannsóknir og atvinnulíf. Þá munu opnast nýjar leiðir til að styðja baráttuna gegn loftslagsbreytingum og kynningu á hreinni orku, þróa samvinnu á Norðurslóðum og tengsl okkar við forysturíki í öðrum álfum, auka tækifæri unga fólksins og lýðræði í landinu.

Ákvörðun mín felur því ekki í sér kveðjustund heldur upphaf að annarri vegferð, nýrri þjónustu við hugsjónir sem hafa löngum verið mér leiðarljós; frjálsari til athafna en áður og ríkari af reynslunni sem forsetaembættið færir hverjum þeim sem þjóðin kýs. …

Ég færi ykkur, kæru landsmenn, einlægar þakkir fyrir traustið sem þið hafið lengi sýnt mér, Dorrit og Guðrúnu Katrínu; óska hverjum og einum, ykkur öllum farsældar í framtíðinni.“

Ekkert fer hér milli mála. Engu að síður hefur hópur manna skorað á Ólaf Ragnar að sitja enn eitt kjörtímabilið. Fremstur fer Guðni Ágústsson, gamall flokksbróðir, til að tryggja hagsmuni Íslands í umræðunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu auk þess sem hópurinn telur engan núlifandi Íslending geta gegnt embætti forseta Íslands annan en Ólaf Ragnar.

Hlutverk forseta Íslands er ekki að vera leiðtogi einhvers afmarkaðs hóps manna eða samtaka. Hlutverk forseta Íslands er að vera sameiningartákn þjóðarinnar, koma fram fyrir hönd hennar allrar án flokkadrátta. Það gerðu forsetar landsins á undan Ólafi Ragnari. Hlutverk misviturra stjórnmálamanna er að berjast fyrir hagsmunum einstakra hópa og tryggja pólitísk völd.

Forseti Íslands á að vera hafinn yfir pólitíska flokkadrætti, hann á að vera vitur maður og menntaður, víðsýnn og umburðarlyndur – og hann á að leitast við af fremsta megni að vera forseti allra Íslendinga – ekki að stuðla að sundrungu þjóðarinnar. Ef skoðun Guðna Ágústssonar og félaga hans reynist rétt, að einungis einn Íslendingur geti gegnt embætti forseta, er best að ganga aftur Noregskonungi á hönd með Nýja sáttmála – og sjá hvað setur næstu 600 sumur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×