Skoðun

Stjórnvöld skortir áræði

Elín Björg Jónsdóttir skrifar
Nú hafa Samtök atvinnulífsins upplýst að þau ætli ekki að ganga til kjarasamninga fyrr en gengið hefur verið frá málefnum varðandi fiskveiðistjórnunarkerfið. Launafólk í alls óskyldum greinum á sem sagt að bíða með úrlausn sinna mála þar til jafn viðkvæmt pólitískt mál og kvótakerfið verður til lykta leitt.

Undanfarin ár hefur sú hefð myndast að hið opinbera bíður með sína samningagerð þar til samið hefur verið á almenna vinnumarkaðinum. Samningar opinberra starfsmanna hafa síðan tekið mið af þeim. Það er hins vegar ólíðandi að þessi sérkrafa verði til þess að allir launamenn í landinu þurfi að bíða í lausu lofti með kjarasamninga.

Í óvissuástandi í efnahagsmálunum, eins og nú ríkir, þarf styrka forystu til að leggja línurnar á vinnumarkaðnum. Það þarf að gera með hagsmuni samfélagsins alls í huga. Það er ekki hægt að bjóða heimilunum í landinu upp á áframhaldandi kaupmáttarrýrnun á meðan hagsmunaeigendur ræða við ríkisstjórnina.

Hagur venjulegs launafólks; sjúkraliða, lögreglumanna, bæjarstarfsmanna, tollvarða, skólaliða, svo dæmi sé tekið, á ekki að vera í höndum útgerðarmanna.

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar kennir sig við félagshyggju. Það skýtur því skökku við að þau ætli sér að láta hagsmuni atvinnurekenda í einni atvinnugrein hindra almennar kjarabætur í landinu. Endurreisn íslensks efnahagslífs er sameiginlegt átak þar sem allir verða að leggjast á eitt. Við verðum hins vegar að hafa stjórnvöld sem þora að skera á hnútinn þegar með þarf, þora að stíga fram fyrir skjöldu og móta stefnuna, með hagsmuni alls fólksins í landinu í huga; ekki bara þeirra sem reka útgerðarfyrirtæki.

Það er skylda ríkisstjórnarinnar að leysa almennt launafólk úr viðjum sérhagsmunanna LÍÚ. Nú er lag að semja við opinbera starfsmenn, slá tóninn fyrir komandi kjarabætur og leyfa Samtökum atvinnurekenda að velja hvort þau verði með í endurreisn samfélagsins, eða hvort þau setji sérhagsmuni ofar almannahagsmunum.

Jóhanna og Steingrímur: sýnið dug og semjið við viðsemjendur ykkar, í því liggur ykkar ábyrgð. Ekki bíða eftir línunni frá sérhagsmunasamtökum. Leggið línurnar sjálf.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×