Skoðun

Skynsemin

Hópur sem kennir sig við skynsemi birtir nú áskoranir um að draga umsókn að Evrópusambandinu til baka. Fróðlegt væri að heyra hvaða framtíðarsýn hópurinn hefur fyrir íslenskt samfélag að öðru leyti.

Umsóknin um aðild að Evrópusambandinu er ekki gæluverkefni. Tuttugu og sjö ríki Evrópu hafa komist að þeirri niðurstöðu að hagsmunum þegna þeirra sé best borgið innan ESB, í samvinnu sjálfstæðra þjóða. Nú erum við Íslendingar að kanna – eftir miklar þjóðfélagslegar hremmingar – hvort hugsanlega eigi það sama við um okkur.

Spurningarnar eru margar: Getur verið að aðild efli íslenskar byggðir? Getur verið að samgöngur batni? Getur verið að vextir af lánum lækki? Er hugsanlegt að grundvöllur efnahagslífsins verði stöðugri? Verður auðveldara að reka fyrirtæki? Getur verið að bændur muni hafa það betra, eins og reynslan sýnir víða? Getur verið að fagmennska í stjórnsýslunni aukist? Getur verið að meiri agi komist á ríkisfjármálin? Eykst framleiðsla og útflutningur? Eykst fjölbreytni í atvinnulífinu? Batna lífskjör?

Til þess að fá einhver svör við þessu þarf að klára samningaviðræður. Það þarf líka að klára þær þannig að við séum sátt við okkar vinnu og verðum sannfærð um að betri samningi verði ekki náð. Síðan þarf þjóðin að taka afstöðu.

Nú er von að spurt sé: Getum við þetta? Fjölmargir reyna nú að leggja stein í götu viðræðnanna, af einhverjum ástæðum. Kannski er það óþol forræðishyggjunnar sem ræður för, kannski varðstaða um sérhagsmuni, kannski þjóðernishyggja, kannski ótti. Að mínu mati yrði það í öllu falli mikill ósigur fyrir íslenskt samfélag að geta ekki klárað þetta ferli með sóma, fordómalaust og án hræðslu.

Eigendur hinna austurþýsku Trabant-bifreiða mynduðu eitt sinn félagsskap. Hann var líka kenndur við skynsemi. Framtíðarsýn þess hóps var líka óljós, enda öðrum þræði grín. Fólk átti að keyra um á Trabant og ekki orð um það meir. Hinn nýi skynsemishópur virðist vera stofnaður á svipuðum grunni. Hér blasa við sömu tengsl skynsemi og ráðstjórnarríkja: Nú á að hafa vit fyrir fólki. Ekki skal kjósa um samning, ekki ræða við hinar þjóðirnar, ekki lesa, ekki skoða, ekki vega og meta. Og hver er svo framtíðarsýnin? Jú, hún er kannski þessi: Bara halda áfram að keyra um á Trabant og ekki orð um það meir.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×