Skoðun

Mælir (óafvitandi) með evru

Anthony Coughlan, fyrrum prófessor við Trinity College í Dublin á Írlandi, hélt nýlega fyrirlestur á vegum Háskóla Íslands og Heimssýnar um Írland og evruna og hvort í reynslu þeirra fælist lærdómur fyrir Ísland. Hann benti réttilega á að vegna þeirra erfiðleika sem Írar, Grikkir og fleiri þjóðir gengju nú í gegnum væru úrræði stjórnvalda allsstaðar þau sömu, að

* lækka laun,

* skerða lífeyri og

* draga úr hagnaði fyrirtækja.

Coughlan taldi einsýnt að þetta væru þau úrræði sem grípa þyrfti til í löndunum, engin önnur úrræði væru þekkt til að glíma við efnahagsvanda af þessu tagi. En sennilega hafa gestgjafar hans ekki bent honum á að hvergi á Vesturlöndum hafa einmitt,

* laun,

* lífeyrir og

* hagnaður

verið skorin jafn hressilega niður og hér á landi þrátt fyrir og vegna gengisfalls krónunnar. Til viðbótar verða einstaklingar og fyrirtæki á Íslandi fyrir mestum búsifjum af völdum snarhækkandi fjármagnskostnaðar vegna vísitölu- og gengisbundinna lána, en þær viðbótarbúsifjar hafa ekki lagst á neina aðra nágrannaþjóð okkar og hvorki Íra né Grikki. Hér er því í reynd spurt, hvort viltu rýra lífskjör þín með gengisfellingu, sem er dulbúin kjaraskerðing, þegar stjórnvöld í landinu hafa gefist upp á að stjórna efnahagslífinu, eða lækka laun þín með öðrum hætti? Hér hafa Íslendingar af reynslu að miðla.

Evra fyrst við viljum ekki krónuCoughlan telur reyndar að Íslendingar ættu helst að halda íslensku krónunni en sennilegast áttar hann sig ekki á hörmungasögu hennar í þau tæp níutíu ár sem hún hefur verið við lýði og því að enginn íslenskur stjórnmálaflokkur heldur því fram að hún geti verið gjaldmiðill Íslendinga til frambúðar. Með því að krónunni hefur verið hafnað verða menn að átta sig á hvaða valkostir eru í boði.

Í þeirri stöðu bendir Coughlan réttilega á að sá gjaldmiðill sem þjóðir eigi að reiða sig á þurfi að taka mið af því til hvaða landa inn- og útflutningi landsins er beint. Ef fylgja ætti ráðleggingum Coughlan hvað þetta varðar kemur í ljós samkvæmt tölum um utanríkisviðskipti Íslendinga er langstærstur hluti íslenskra utanríkisviðskipta við lönd þar sem gjaldmiðillinn er evra eða gjaldmiðill landsins tengdur við evru. Þannig að þó svo að efast megi um réttmæti þess að Írar hafi tekið upp evru sé evra augljóslega sá gjaldmiðill sem Íslendingar ættu að nota, fyrst þeir kjósa að nota ekki íslenska krónu.

Íslendingar hafa áttað sig á að krónan getur aldrei orðið sú vörn fyrir lífskjör almennings sem eigin gjaldmiðlar eru öðrum þjóðum og því er brýnt að nýr gjaldmiðill þjóðarinnar verði aldrei afgangsstærð fyrir vanhæfa stjórnmálamenn að skýla sér á bak við með gengisfellingum, þegar efnahagsstjórn þeirra hefur farið í handaskolum. Það er hörmungarsaga íslenskrar hagstjórnar sem þjóðin lætur ekki bjóða sér lengur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×